Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. febrúar 2026 13:48 Marina Mamic tók sig til og umbreytti sér í Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska handboltalandsliðsins. Ein stærsta stjarna nýafstaðins Evrópumeistaramóts í handbolta er án efa Dagur Sigurðsson sem stýrði Króötum til bronsverðlauna og jós úr skálum reiði sinnar á eftirminnilegum blaðamannafundi. Dagur er orðinn svo mikil stjarna að króatískur förðunarfræðingur setti sig í líki þjálfarans.
Dagur Sigurðsson var fyrirliði íslenska landsliðsins um árabil, skoraði 399 mörk í 215 landsleikjum og hefur átt farsælan feril sem þjálfari. Dagur þjálfaði þýska landsliðið til gullverðlauna á EM 2016 og bronsverðlauna á Ólympíuleikunum sama ár, þjálfaði Japani frá 2017 til 2024 og tók þá við þjálfun króatíska landsliðsins. Dagur byrjaði tíma sinn hjá Króatíu vel og kom þeim á Ólympíuleikana 2024 þar sem uppskeran var þó aðeins níunda sæti. Síðan þá hefur liðið farið með himinskautum, hrepptu silfur á Heimsmeistaramótinu í fyrra og brons á EM núna. Sérstaka athygli vakti á mótinu þegar Dagur lét mótshaldara heyra það fyrir lélega skipulagningu mótsins sem kæmi niður á heilsu leikmanna. Fyrir utan bronsið og blaðamannafundinn frumsýndi Dagur líka óbeint kærustu sína, Ásu Ingu Þorsteinsdóttur, sem hann hefur verið að slá sér upp með undanfarna mánuði. Sjá einnig: Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Fjölmiðlar og sérfræðingar hafa keppst við að lofa þjálfarann en sennilega hefur enginn sýnt honum eins mikinn heiður og Marina Mamic, förðunarfræðingur og TikTok-stjarna. @marinamamic Evo ukratko zašto smo izgubili 🤷🏼♀️💔 Borili su se i možemo bit ponosni 🫶🏼 #dagursigurdsson #makeup #makeuptrasformation #hrvatska #croatia ♬ original sound - Marina Mamić Fyrir tveimur dögum síðan, í undirbúningi fyrir bronsleikinn, birti hún förðunarmyndband þar sem hún var búin að breyta sér í þjálfarann og sama dag endurlék hún blaðamannafund hans frá mótinu. Í gær birti Marina svo þriðja myndbandið þar sem hún sýndi frá öllu ferlinu og hvernig hún umbreytti sér í þjálfarann vinsæla. @marinamamic Dagur Sigurðsson makeup transformacija ✌🏼 Dosta teška transformacija moram priznati 🫶🏼 #dagursigurdsson #makeup #makeuptransofrmation #fyp ♬ original sound - Marina Mamić
Hár og förðun EM karla í handbolta 2026 Króatía Tengdar fréttir 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson. 2. febrúar 2026 11:01 Biður Dag afsökunar Króatinn Nenad Kljajic, fyrrverandi landsliðsmaður og handboltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í Atlanta árið 1996, biður Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu afsökunar í færslu á samfélagsmiðlum í dag. 1. febrúar 2026 19:46 Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Evrópska handknattleikssambandið hefur sent frá sér aðra yfirlýsingu, eftir reiðilestur Dags Sigurðssonar á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleik Króatíu og Þýskalands í gær. Sambandið lofar því nú að minnka leikjaálagið og bæta skipulagið. 30. janúar 2026 11:36 Mest lesið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira
75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson. 2. febrúar 2026 11:01
Biður Dag afsökunar Króatinn Nenad Kljajic, fyrrverandi landsliðsmaður og handboltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í Atlanta árið 1996, biður Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu afsökunar í færslu á samfélagsmiðlum í dag. 1. febrúar 2026 19:46
Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Evrópska handknattleikssambandið hefur sent frá sér aðra yfirlýsingu, eftir reiðilestur Dags Sigurðssonar á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleik Króatíu og Þýskalands í gær. Sambandið lofar því nú að minnka leikjaálagið og bæta skipulagið. 30. janúar 2026 11:36
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið