Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 10:27 Þórdís Kolbrún er framsögumaður málsins í utanríkismálanefnd, Pawel Bartoszek er formaður nefndarinnar þar sem Sigmundur Davíð er fulltrúi Miðflokksins. Vísir/samsett Ný stefna í varnar- og öryggismálum var afgreidd úr utanríkismálanefnd í síðustu viku þar sem fulltrúar allra flokka á Alþingi taka undir sameiginlegt nefndarálit um málið. Nefndin gerir fjórar breytingatillögur við þingsályktunina sem flestar fela í sér orðalagsbreytingar. Nefndin leggur hins vegar til að ekki verði minnst sérstaklega á Evrópusambandið í stefnunni og vill árétta að varnar- og öryggisstefnan, sem verður sú fyrsta sem Alþingi setur formlega á Íslandi, verði órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnu sem þegar liggur fyrir. Alls bárust 24 umsagnir um málið.
Þetta má lesa úr nefndaráliti utanríkismálanefndar sem dreift var á Alþingi á fimmtudaginn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um fyrstu formlegu stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum á Alþingi í byrjun nóvember. Tillagan felur í sér þrettán megináherslur, meðal annars um aukna þátttöku Íslands í starfi og verkefnum Atlantshafsbandalagsins, um að efla varnarsamstarf við Bandaríkin og annað tvíhliða samstarf við bandalagsríki, og að styrkja þátttöku Íslands í svæðisbundnu samstarfi, einkum á Norðurslóðum. Miðflokkurinn með á nefndaráliti Tillagan er í megindráttum í samræmi við þær fjórtán lykiláherslur sem samráðshópur þingmanna lagði til í skýrslu sem kynnt var í september í fyrra. Athygli vakti á sínum tíma að Ingibjörg Davíðsdóttir, fulltrúi Miðflokksins í samráðshópnum, sagði sig úr hópnum áður en hann lauk sínum störfum og átti Miðflokkurinn því ekki aðild að niðurstöðum hópsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, skrifar hins vegar undir sameiginlegt nefndarálit um málið, líkt og fulltrúar allra annarra flokka á Alþingi sem sitja í nefndinni. Líkt og áður segir gerir nefndin fjórar breytingartillögur við málið. Tvær þeirra fela í sér orðalagsbreytingar þar sem lagt er til að orðunum „og sambærilegum ógnum af mannavöldum“ verði bætt við greinar stefnunnar. Með því að bæta við þessu orðalagi við á tveimur stöðum í þingsályktunartillögunni vill utanríkismálanefnd ná betur utan um ógnir af mannavöldum í víðari skilningi en ekki bara um beinar hernaðarlegar ógnir. Orðalaginu er einkum ætlað að ná yfir fjölþáttaógnir á borð við hryðjuverka- eða netógnir eða skemmdarverkastarfsemi sem skipulögð er af hálfu erlendra ríkja. Ólík sjónarmið um varnarsamstarf við ESB Þá leggur nefndin til að „Evrópusambandið“ verði tekið út úr fjórða tölulið stefnunnar. Nái sú breytingartillaga fram að ganga mun sá liður hljóða svo: „Að þróa og efla varnar- og öryggissamvinnu við helstu samstarfsríki Íslands innan Evrópu sem og Kanada á grundvelli sameiginlegra varnar- og öryggishagsmuna.“ Evrópusambandið er með í upptalningunni eins og þingsályktunartillagan sjálf hljóðar nú, óbreytt, en ESB er hins vegar getið nokkrum sinnum í greinargerð um málið eins og því var dreift til þingsins í haust. Um þessa breytingartillögu segir meðal annars í nefndarálitinu að fyrir liggi „að innan nefndarinnar eru ólíkar skoðanir þegar kemur að áherslu á varnarsamstarf með Evrópusambandinu.“ Að öðru leyti er breytingartillagan sem slík ekki frekar rökstudd sérstaklega. Þannig má þó ætla að nefndin geri þessa breytingartillögu til málamiðlunar og til að skapa breiðari samstöðu um stefnuna, þvert á flokka. Árétta „órjúfanleg“ tengsl við þjóðaröryggisstefnu Loks leggur nefndin til að nýjum málsliði verði bætt við þar sem lögð er áhersla á að stefnan „skuli taka mið af og verði órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnu, raunhæf og kostnaðarmetin, og uppfærð með reglubundnum hætti að höfðu samráði við Alþingi,“ eins og það er orðað í breytingartillögunni. „Með tillögunni er lögð til stefna í varnar- og öryggismálum sem Alþingi felur ríkisstjórninni að framfylgja. Samkvæmt tillögunni er markmið stefnunnar að tryggja sjálfstæði, fullveldi, lýðræðislegt stjórnarfar, friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna og vernd stjórnkerfis og mikilvægra innviða samfélagsins gegn hernaðarlegri ógn. Tillagan byggist á þeim skuldbindingum sem felast í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafssáttmálanum, tvíhliða samningum við önnur ríki og grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins,“ segir meðal annars um markmið stefnunnar í nefndarálitinu frá utanríkismálanefnd. Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, fagnaði afgreiðslu málsins og samstöðunnar í nefndinni á samfélagsmiðlum í síðustu viku. „Stefnan verði hluti þeirrar heildarmyndar sem þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland felur í sér og taki til hernaðarlegra áhættuþátta. Samkvæmt tillögunni tryggir Ísland öryggi sitt gagnvart slíkri hættu með virkri samvinnu við önnur ríki og innan alþjóðastofnana samhliða uppbyggingu á innlendum, borgaralegum viðbúnaði og getu. Meginstoðir stefnunnar verði aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningur við Bandaríkin,“ segir ennfremur í inngangsorðum nefndarálitsins. Síðari umræða um stefnu í varnar- og öryggismálum verður að óbreyttu áttunda málið á dagskrá þingfundar sem hefst klukkan þrjú í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnum og atkvæðagreiðslum um önnur mál.
Alþingi Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Fleiri fréttir „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Sjá meira