„Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. janúar 2026 14:59 Andri og David eru enn jafnlíkir þó þeir séu ekki jafnungir og þeir voru um aldamótin. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason og Hollywood-leikarinn David Duchovny tóku mynd af sér saman á Sundance-hátíðinni. Þeim hefur lengi verið líkt saman og voru valdir tvífarar í Fókus-blaði DV um aldamótin.
Andri Snær er staddur á Sundance-hátíðinni vegna sýningar heimildarmyndarinnar Time and Water sem byggir á bók hans Um tímann og vatnið. Hann hefur greinilega rekist þar á tvífara sinn og birti mynd af þeim félögum á Facebook fyrr í dag. Þar rifjaði hann upp samanburðinn í Fókus frá janúar 2000 og skrifaði við færsluna slagorð sjónvarpsþáttanna X-Files: „The truth is out there“ en Duchovny lék aðalhlutverk sæfæþáttanna í ellefu þáttaraðir og var súperstjarna á tíunda áratugnum. „Ég læt stjörnur alltaf vera en þegar David kom mátti ég til með að smell. Amma sagði alltaf að við værum líkir,“ sagði Andri þegar blaðamaður náði tali af honum, nýlega vöknuðum í Park City í Utah. Kortersstopp á Skuggabarnum „David Duchovny leikari og Andri Snær Magnason rithöfundur eru drengilegir menn að sjá. Augnsvipurinn er kíminn og óræður, auk þess sem þeir virðast oft hálfglottuleitir. Þetta eru menn með hátt enni, vel lagað nef og myndu báðir ganga út á Skuggabarnum eftir kortérsstopp,“ sagði í lýsingu á þeim félögum í Fókusi um árið. „Þeir flagga báðir glaðlegu og allt að því barnslega sakleysislegu yflrbragði. Þetta yfirbragð væri tilvalið fyrir hvaða fermingarbarn sem er en fæst þeirra geta státað af því. Þau eru töluvert gráðugri á svipinn en félagarnir David og Andri,“ sagði einnig. „Eitt atriði er þó ólíkt í útliti þeirra, þeir greiða toppinn hvor út í sinn vangann.“
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira