Fífilsgata verður Túnfífilsgata en ekki Hlíðarfótur Lovísa Arnardóttir skrifar 15. janúar 2026 13:30 Nýjar götur myndast við byggingu nýs Landspítala. Þær hafa allir fengið nöfn en tveimur verið breytt. Vísir/Vilhelm Gatnanafnanefnd hefur samþykkt að breyta nafni Fífilsgötu í Túnfífilsgötu. Nefndin hafði áður ákveðið að breyta nafninu götunnar í Hlíðarfótur því nafnið væri of líkt nafni annarrar götu, Vífilsgötu, í Norðurmýri.
Nefndin tók fyrir erindi frá Nýjum Landspítala í desember og í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá því í gær kemur fram að nefndin hafi tekið vel í erindið og samþykkt nafnabreytinguna. Þegar nöfnin á nýjum götum við nýjan spítala voru ákveðin var tekin ákvörðun um að göturnar yrðu, til dæmis, nefndar eftir íslenskum lækningajurtum. Lagt var til að göturnar fengju nöfnin Burknagata, Blóðbergsgata, Hvannargata, Njólagata og Fífilsgata og kallast á við nöfnin í götunum í kring sem eru, til dæmis, Sóleyjargata og Fjólugata. Síðar var fallið var frá nafninu Njólagata vegna þess að fólk tengir njóla frekar við villijurt en jurt sem kveikir og viðheldur lífsvon. Spítalinn stendur því í dag við Burknagötu frekar en Njólagötu. Fjallað var svo um það í umhverfis- og skipulagsráði í október að örnefnanefnd leggðist gegn Fífilsgötu, það væri of líkt Vífilsgötu, og fengi nafnið Hlíðarfótur. Í erindi Nýs Landspítala til gatnanafnanefndarinnar segir að nýlega hafi verið tilkynnt að í stað þess að nefna götuna Fífilsgötu myndi hún fá nafnið Hlíðarfótur og þannig verða framlenging á götu sem er þegar í Hlíðunum, á Valsreit. Við þá breytingu lengdist gatan og tilheyrði tveimur póstnúmerum og kjördæmum. Nýr Landspítali bendir á að þessi ákvörðun gatnanafnanefndar hafi verið gagnrýnd á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Þau leggi því til að í stað þess að gatan fái nafnið Hlíðarfótur fái hún nafnið Túnfífilsgata. „… því vissulega var um að ræða túnfífil sem bar uppi nafn Fífilsgötu. Túnfífill er hin eiginlega lækningajurt til forna og mun Túnfífilsgata kallast þannig áfram á við þær götur sem bera nöfn íslenskra gróðurtegunda og lækningajurta. Engar líkur eru á því gagnvart örnefnum að rugla Túnfífilsgötu við Vífilsgötu,“ segir að lokum í erindi spítalans til nefndarinnar, sem tók vel í og samþykkti breytinguna. Á þessu korti má sjá hvað göturnar heita og hvar þær eru á skipulagi. Túnfífilsgata er sú sem er rauðmerkt lengst til vinstri á kortinu. Nýr Landspítali Aðrar götur við nýjan spítala heita Hildigunnargata, Þjóðhildargata, Freydísargata og Hrafnsgata og eru þannig með skírskotun í Íslendingasögur og íslenska miðaldamenningu tengda sögu læknisfræðinnar. Hildigunnur læknir er nefnd í Njálu og sýnd græða fólk og af lækningum Hrafns Sveinbjarnarsonar, goðorðsmanns og læknis, segir talsvert í sögu hans. Nöfnin eru því heilbrigðiskerfinu sérstaklega til heiðurs.
Landspítalinn Skipulag Reykjavík Örnefni og götunöfn Tengdar fréttir Burknagata opnuð fyrir umferð Burknagata verður opnuð fyrir umferð á morgun en um er að ræða hluta af gömlu Hringbrautinni sem lokað var vegna framkvæmda við nýja Landspítalann. 8. nóvember 2019 23:00 Njólagata, Fífilsgata og fleiri ný götunöfn við Landspítala ekki samþykkt Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborg virðist ekki hafa verið hrifið af tillögum nafnanefndar um ný götuheiti á lóð Landspítalans 3. september 2018 16:15 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira
Burknagata opnuð fyrir umferð Burknagata verður opnuð fyrir umferð á morgun en um er að ræða hluta af gömlu Hringbrautinni sem lokað var vegna framkvæmda við nýja Landspítalann. 8. nóvember 2019 23:00
Njólagata, Fífilsgata og fleiri ný götunöfn við Landspítala ekki samþykkt Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborg virðist ekki hafa verið hrifið af tillögum nafnanefndar um ný götuheiti á lóð Landspítalans 3. september 2018 16:15