Maður ársins og slökkviliðið brugðust við vegna álftar sem fraus föst Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. janúar 2026 10:17 Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom álftinni til aðstoðar en hún hafði frosið föst við ísinn á tjörninni í Hafnarfirði. Facebook/Guðmundur Fylkisson Meðal verkefna Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring var að aðstoða álft sem var frosin föst á læknum í Hafnarfirði. Slökkviliðinu tókst að leysa álftina úr prísundinni og hélt álftin svo áfram leið sinni um lækinn.
Slökkviliðið greinir frá verkefninu í stuttri færslu um helstu verkefni síðastliðins sólarhrings á Facebook í morgun. Það virðast þó hafa verið fuglavinir í Hafnarfirði sem kölluðu eftir aðstoð en sjálfur maður ársins, Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, deildi myndum af álftinni á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og sagði hjálp vera á leiðinni. Álftin sat föst við ísinn í kuldanum.Facebook/Guðmundur Fylkisson Myndunum deildi Guðmundur í Facebook-hópinn „Project-Henrý“, hópur sem tileinkaður er fuglum og fuglalífinu við Lækinn í Hafnarfirði, Víðistaðatjörn og höfnina í Hafnarfirði. Þar deildi Guðmundur einnig myndum frá björgunaraðgerðum eftir að slökkviliðið var mætt á vettvang. „Takk SHS. Við fylgjumst með henni,“ skrifaði Guðmundur eftir að álftin var laus úr prísundinni. Ekki er langt síðan að björgunarsveitir og Brunavarnir Árnessýslu fengust við sambærilegt verkefni þegar álft hafði frosið föst við klaka í Ölfusá, líkt og Vísir greindi frá í síðustu viku, en þá tókst vöskum björgunarmönnum einnig að losa álftina sem sat föst í Ölfusá. Á leið til aðstoðar.Facebook/Guðmundur Fylkisson Loksins var álftin aftur laus.Facebook/Guðmundur Fylkisson
Fuglar Dýr Dýraheilbrigði Hafnarfjörður Slökkvilið Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira