Stofna ný samtök gegn ESB aðild Jón Ísak Ragnarsson skrifar 10. janúar 2026 20:41 Ögmundur Jónasson hélt erindi á stofnfundinum í dag. Junía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir „Til vinstri við ESB“ heita ný samtök sem stofnuð voru í dag, en í tilkynningu segir að samtökin hafni aðild að Evrópusambandinu og markmið þeirra sé að standa gegn tilraunum til að innlima Ísland í Evrópusambandið.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að tugir manna hafi sótt stofnfundinn í dag og fjöldi fólks tekið þátt í gegnum fjarfundabúnað. Heimasíða hafi verið sett á laggirnar, en unnið sé að uppsetningu hennar. Framkvæmdastjórn nýju samtakanna skipa: Formaður - Þorsteinn Bergsson, Egilsstaðir. Varaformaður - Guðbjörg Sveinsdóttir, Kópavogur. Ritari - Margrét Pétursdóttir, Hafnarfjörður. Gjaldkeri - Ágúst Valves Jóhannesson, Kópavogur. Meðstjórnandi - Jökull Sólberg Auðunsson, Reykjavík. Til vara: Bjarni Harðarson, Selfoss. Þorleifur Gunnlaugsson, Hveragerði. Sjöfn Ingólfsdóttir, Reykjavík. Aðrir í aðalstjórn: Anna Gunnlaugsdóttir, Reykjavík. Árni Daníel Júlíusson, Reykjavík. Ásdís Helga Jóhannesdóttir, Kópavogur. Baldvin H. Sigurðsson, Akureyri. Guðmundur Auðunsson, Bretland. Hjálmdís Hafsteinsdóttir, Hveragerði. Sólveig Anna Jónsdóttir, Reykjavík. Tinna Þorvalds Önnudóttir, Reykjavík Þórarinn Magnússon, Skagafjörður Samtökin byggi á eftirfarandi stefnuyfirlýsingu sem samþykkt var samhljóða á fundinum: Samtökin vilja að Ísland leggi lóð sín á vogarskálar friðar, lýðræðis og mannúðar og beiti sér jafnframt gegn arðráni nýlenduvelda, bæði gamalla og nýrra. Fámenn þjóð getur gegnt þýðingarmiklu hlutverki í veröld þar sem nýlendustefna sækir í sig veðrið sem aldrei fyrr og ófriðarblikur eru á lofti. Við leggjum upp úr alþjóðlegu samstarfi á sviði vísindarannsókna, menningar og mennta og viljum styrkja og efla þær alþjóðlegu stofnanir sem ætlað er að sinna slíku hlutverki. Sérhverri þjóð ber að horfa til þess hvar hún geti best orðið að gagni í samfélagi þjóðanna. Íslendingar hafa getið sér gott orð fyrir framlag á sviði jafnréttis- og annarra mannréttindamála, hafréttarmála, eldfjallarannsókna og vinnslu grænnar orku svo nokkrir þættir séu nefndir um uppbyggilegt og mikilvægt starf í alþjóðlegri samvinnu. „Samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði (EES) hefur tvímælalaust orðið óhagstæðari með þeim breytingum sem hann hefur tekið frá því hann var undirritaður á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar – var hann þó alla tíð gagnrýni verður,“ segir í fréttatilkynningunni. „Þeir fyrirvarar sem samningamenn Íslands reyndu að setja til varnar stjórnarskránni og sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar hafa verið látnir víkja hver á fætur öðrum. Það sem átti að verða samningur hefur orðið að einhliða valdboði.“ Tugir sóttu fundinn.Junía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir
Evrópusambandið Félagasamtök Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira