Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Jón Ísak Ragnarsson skrifar 23. desember 2025 19:25 Breski grínistinn Russell Brand sætir nú sjö ákærum fyrir kynferðisbrot. AP Nýjar ákærur hafa litið dagsins ljós á hendur skemmtikraftinum Russell Brand, þar sem hann er sakaður um eina nauðgun og tvö önnur kynferðisbrot. Þetta mun vera þriðja nauðgunin sem hann er sakaður um en hann hefur yfir höfði sér fimm aðrar ákærur um kynferðisbrot. Russell Brand hefur neitað alfarið sök í hinum fimm ákærunum.
Hin nýju meintu brot eiga að hafa átt sér stað árið 2009, og snúa þau að tveimur konum, en fjallað erum málið á vettvangi breska ríkisútvarpsins. Hinn fimmtíu ára gamli Russell Brand mætir í dómsal 20. janúar næstkomandi til að svara fyrir nýju ákærurnar. Réttarhöld munu fara fram í júní á næsta ári vegna ákæranna fimm sem áður höfðu komið fram, en hann hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað konu í Bournemouth árið 1999, Fyrir að hafa ráðist kynferðislega á konu í Westminster í Lundúnum árið 2001, fyrir að hafa nauðgað konu í sama hverfi árið 2004 og fyrir að hafa ráðist kynferðislega á konu í Lundúnum á árunum 2004 og 2005. Brand neitar sök í öllum þessum málum. Í apríl sagðist hann hafa verið hálfviti, eiturlyfja- og kynlífsfíkill, en aldrei nauðgari. Hann væri þakklátur að geta fengið að verja sig í réttarhöldum. Lionel Idan, saksóknari í Suður-Lundúnum, segir í viðtali við Telegraph að hinar nýju ákærur snúi að frásögnum tveggja ótengdra kvenna um kynferðisbrot árið 2009. „Saksóknarar okkar hafa komist að þeirri niðurstöðu að sönnunargögnin sem fyrir liggja í málinu ættu að duga til þess að fara með malið fyrir dóm.“ Konurnar sem Brand hefur verið ákærður um að hafa brotið gegn eru nú orðnar sex.
Mál Russell Brand Bretland Erlend sakamál Hollywood Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira