Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. desember 2025 11:30 Jimmy Kimmel mun ávarpa bresku þjóðina. Matt Winkelmeyer/The Hollywood Reporter via Getty Images) Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel mun ávarpa bresku þjóðina í árlegu hátíðarávarpi sem sýnt er á Channel 4 sjónvarpsstöðinni. Þar mun hann rifja upp árið sem er að líða og þegar þáttur hans var tekinn af dagskrá um stund.
Stöðin fær á hverju ári óvenjulega einstaklinga til að halda nýársávarp og tala til bresku þjóðarinnar. Meðal þeirra sem hafa haldið ávarpið er uppljóstrarinn Edward Snowden og fyrrverandi forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad. Breska blaðið Guardian segir að spjallþáttastjórnandinn muni gagnrýna bandarísk yfirvöld mjög í ávarpi sínu. „Frá sjónarhóli fasisma, þá hefur þetta verið virkilega frábært ár,“ mun sjónvarpsmaðurinn meðal annars segja í ávarpi sínu. Spjallþáttur hans til margra ára var skyndilega tekinn af dagskrá ABC sjónvarpsstöðvarinnar í september eftir að hann sakaði hreyfingu Trump-liða um að nýta sér morðið á Charlie Kirk í pólitískum tilgangi. Trump hrósaði stjórnendum ABC sjónvarpsstöðvarinnar í hástert fyrir ákvörðunina en eigandi stöðvarinnar Disney var undir mikilli pressu frá Hvíta húsinu vegna málsins. Rifjað er upp í umfjöllun Guardian að ákvörðunin hafi vakið mikla neikvæða athygli og verið harðlega gagnrýnd víða, sem svo varð til þess að þáttur Kimmel var tekinn aftur til sýninga nokkrum dögum síðar. Segir miðillinn að sjónvarpsmaðurinn muni sérstaklega þakka þeim fyrir sem hafi komið honum til varnar. Haft er eftir Channel 4 að forsvarsmönnum sjónvarpsstöðvarinnar hafi þótt einkar viðeigandi að Kimmel myndi ávarpa bresku þjóðina á þessum tímamótum, í ljósi endurkomu Donalds Trump í Hvíta húsið og baráttuna fyrir málfrelsi.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnaði því í nótt að forsvarsmenn Disney og sjónvarpsstöðvarinnar ABC, sem er í eigu Disney, hefðu tekið þá ákvörðun að hætta að sýna þátt Jimmy Kimmel í óákveðinn tíma, eftir að yfirmaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), gaf til kynna að útsendingaleyfi gæti verið tekið af sjónvarpsstöðvum sem sýna þættina. 18. september 2025 10:13 Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Stjórnendur spjallþátta vestanhafs voru nokkuð þungir á brún vegna þess að þáttur Jimmys Kimmel var tekinn úr loftinu í vikunni en gerðu þrátt fyrir það stólpagrín að vendingunum og Donald Trump, forseta, þar sem þeir lofuðu hann í hástert, með mikilli kaldhæðni. 19. september 2025 10:09 Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira
Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnaði því í nótt að forsvarsmenn Disney og sjónvarpsstöðvarinnar ABC, sem er í eigu Disney, hefðu tekið þá ákvörðun að hætta að sýna þátt Jimmy Kimmel í óákveðinn tíma, eftir að yfirmaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), gaf til kynna að útsendingaleyfi gæti verið tekið af sjónvarpsstöðvum sem sýna þættina. 18. september 2025 10:13
Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Stjórnendur spjallþátta vestanhafs voru nokkuð þungir á brún vegna þess að þáttur Jimmys Kimmel var tekinn úr loftinu í vikunni en gerðu þrátt fyrir það stólpagrín að vendingunum og Donald Trump, forseta, þar sem þeir lofuðu hann í hástert, með mikilli kaldhæðni. 19. september 2025 10:09