Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar 9. desember 2025 22:20 Úr leik kvöldsins Vísir/Hulda Margrét Nýliðar KR gerður sér lítið fyrir og lögðu ríkjandi Íslandsmeistara Hauka að velli í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Ólafssal sex stiga sigur KR, 92-86. Það stefndi allt í hörku leik hér á Ásvöllum í kvöld þegar Íslandsmeistarar Hauka tóku á móti KR-ingum. Bæði lið komu inn í þennan leik með sigur að baki úr 10. umferð Bónus Deildar kvenna. Liðin byrjuðu leikinn á því að skiptast á þristum og eftir sex mínútna leik var staðan orðin 13-14 gestunum í vil, en þeir voru þá langt frá því að kalla þetta gott og komust að mestu í sjö stiga forystu fyrir lok fyrsta leikhluta en Sólrún Inga náði að minnka muninn fyrir heimamenn þegar nokkrar sekúndur voru eftir og endaði fyrsti leikhluti 21-25 fyrir KR. Gestirnir úr Vesturbænum virtust ætla taka yfir seinni leikhluta þegar Molly hitti þrist rétt eftir að leikur hófst á ný, svo tóku heimakonur aðeins í taumana og minnkuðu muninn sem náði upp að tíu stigum á kafla, 40-41 var þá staðan þegar flautað var til hálfleiks. Heimakonur byrjuðu þriðja leikhluta að krafti og komust í tólf stiga forystu þegar mestu munaði, minnkaði þó aðeins munurinn þegar lengra leið á seinni part leikhutans og endaði sá þriðji 70-62. Gestirnir áttu þó síðasta höggið og gerðu út af við heimakonur í lok leiks, Haukakonur virtust hálf sprungnar þegar um tvær mínútur voru eftir og sást það með feilsendingu í stöðunni 84-88 þar sem KR vinna boltann og loka leiknum, lokatölur héðan af Ásvöllum enduðu 86-92 og fara Vesturbæingar með öll stigin í pokanum heim. Atvik leiksins Engin stök atvik þessa leiks, heldur var hann kaflaskiptur og myndi ég segja það hafa verið þessi rosa kafli í þriðja leikhluta hjá Haukakonum þegar þær skutust frá 1 stigi undir að 12 stigum yfir, en eftir það kom ekki annar svoleiðis kafli hjá þeim. Stjörnur og skúrkar Liðsfélagarnir Molly Kaiser og Eve Braslis hreppa stjörnutitilinn í dag, Molly skilaði inn 37 stigum og fimm stoðsendingum, Eve var sömuleiðis með 21 stig og þrjár stoðsendingar, virkilega flott tvíeyki hér á ferð! Dómararnir Þeir Sigmundur Már, Bjarni H. og Aron stóðu sig með sóma á flautunni, eitt og eitt atvik sem bekkirnir tveir voru ósáttir með, en burt frá því séð leyfðu þeir leiknum að ganga sinn gang. Stemning og umgjörð Stemningin var góð í kvöld í heimili ríkjandi Íslandsmeistaranna, það var fremur fjölmennt í stúkunni en ferðin frá Vesturbæ virðist hafa verið of löng fyrir stuðningsmenn gestanna þar sem þeir reyndust vera fáir í Hafnarfirðinum Virkilega flott umgjörðin á Ásvöllum, það verður seint tekið af þeim. Kakó í Play pappabollum var stemning! Emil Barja, þjálfari Hauka - „Fóru illa með okkur“ Emil Barja á hliðarlínunni í leik kvöldsinsVísir/Hulda Margrét „Þær fóru illa með okkur í sóknarfráköstum í seinni hálfleik og voru að hitta, þær hafa ekki skotið vel í vetur, við vorum kannski aðeins of mikið að veðja á það að þær myndu klikka, og þær tóku mikið af fráköstunum, kannski hefði þetta átt að vera stærra,“ sagði Emil Barja, þjálfari Hauka eftir tapleik kvöldsins. Haukar komust í 12 stiga forystu í þriðja leikhluta, eftir það tóku KR-ingar við sér og voru yfir restina af leiknum eftir þann kafla „Það voru akkúrat sóknarfráköstin, og það dregur þvílíka orku úr okkur þegar við spiluðum fína vörn fyrstu sóknina en þessi sóknarfráköst og þá er næsta sóknin alltaf aðeins hægari og þær auðvitað skora á endanum. Sóknarlega vorum við líka að gera aðra hluti sem voru ekki að virka.“ Hvernig verður undirbúningurinn fyrir næstkomandi leiki? „Við erum með bikarleik strax á sunnudaginn þannig að við þurfum að hrista þetta strax úr okkur og byrja að undirbúa okkur fyrir Njarðvík sem verður hörku leikur.“ Bónus-deild kvenna Haukar KR