Grinda­vík - Tinda­stóll 91-75 | Toppliðið valtaði yfir Tinda­stól

Pálmi Þórsson skrifar
Tindastóll sá aldrei til sólar í kvöld. 
Tindastóll sá aldrei til sólar í kvöld.  vísir/Diego

Grindavík gjörsigraði Tindastól 91-75 í toppslag 8. umferðar Bónus deildar karla. Stólarnir sáu aldrei til sólar og Grindvíkingar stigu skrefinu fram úr, enn ósigraðir.

Fyrir leikinn var búið að vera mikið umtal um Deandre Kane sem var síðan settur í bann fyrir háttsemi sína gegn ÍR í síðustu viku.

Leikurinn var aldrei spennandi þátt fyrir það. Grindvíkingar tóku öll völd frá fyrstu mínútu. Þeir lokuðu teignum varnarlega sem leiddi til þess að Tindastóll treystu á þriggja stiga skotið sem heldur betur brást þeim. 

3/19 í þriggja stiga skotum 

Í fyrri hálfleik hittu þeir einungis úr 3 þriggja stiga skotum úr 19 tilraunum og töpuðu boltanum 14 sinnum einnig. Það leiddi til þess að Grindvíkingar voru verðlaunaðir sóknarlega og fengu auðveldar körfur en einnig hittu þeir vel fyrir utan. 

Staðan í hálfleik var 51-30 og engin leið auðsjáanleg fyrir gestina að koma til baka úr þessu.

Shabazz óstöðvandi 

Seinni hálfleikur fór ekkert betur af stað fyrir Stólana en þegar þeim tókst að gera eitthvað sóknarlega þá taldi það bara svo lítið því hinum megin var Khalil Shabazz að leika listir sínar. Hann endaði leikinn með 33 stig í öllum regnbogans litum og gaf 7 stoðsendingar. Arnór Tristan tók það á sig að hjálpa honum í stigaskorinu, með 20 stig.

Áhugaverðar lokamínútur 

Síðustu fimm mínútur leiksins voru samt sem áður áhugaverðar. Tindastólsmenn áttu sinn langbesta kafla en Grindvíkingum leið vel og fóru aðeins að slaka á. Leikurinn endaði samt með stórsigri Grindavík 91-75 og sitja þeir einir taplausir á toppnum á leið í landsleikjahlé.

Atvik leiksins

Það voru eiginlega engin merkileg atvik í þessum leik. Bara góður Grindavíkursigur.

Stjörnur og skúrkar

Stjörnurnar eru auðvitað Khalil Shabazz og Arnór Tristan en sú óvænta er hann Unnsteinn Rúnar Kárason sem kom inn af bekknum hjá Grindavík og smellti í 11 stig ásamt því að spila hörkuvörn.

Dómarar

Sigmundur Már, Jakob Árni og Bjarni Hliðkvist voru með allt í teskeið í þessum leik. Héldu flæði og stýrðu leiknum þokkalega. Sluppu samt við að taka einhverjar virkilega stórar ákvarðanir.

Stemning og umgjörð

Bullandi stemning í Grindavík. Vel mætt báðum megin en partýið var Grindavíkurmegin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira