Útilokar ekki afskipti ríkisstjórnarinnar af verkfallinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. október 2025 18:34 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra heldur utan um buddu ríkisins. Vísir/Anton Brink Fjármála- og efnahagsráðherra útilokar ekki að ríkisstjórnin grípi inn í vegna stöðu mála í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra. Fyrsta vinnustöðvunin fór fram síðastliðna nótt og hafa fleiri aðgerðir verið boðaðar. Ríkisstjórnin fylgist grannt með.
Verkfall flugumferðarstjóra hófst í gærkvöldi og heldur áfram í nótt. Öllum flugferðum sem voru á áætlun á verkfallstíma var aflýst, frestað eða flýtt. „Í gær hófst verkfall flugumferðarstjóra sem hefur í för með sér veruleg áhrif á flugsamgöngur, áætlanir ferðamanna, starfsemi ferðaþjónustu og rekstur flugfélaga. Áhrifin ná einnig til fjölmargra fyrirtækja og heimila sem treysta á öruggar og tímalegar tengingar við útlönd,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Hún spurði Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, meðal annars um hvenær almenningur, aðilar vinnumarkaðarins og þjónustugreinar sem reiði sig á flugsamgöngur geti gert ráð fyrir skýrri afstöðu ríkisstjórnarinnar og viðeigandi aðgerðum. „Við virðum samningsfrelsi og verkfallsrétt en á sama tíma ber okkur skylda til að gæta almannahagsmuna og stuðla að því að deilur leysist á farsælan og fyrirsjáanlegan hátt,“ segir Guðrún. Daði Már sagði það ljóst að um væri að ræða lykilstétt í landinu. „Þetta er mál sem ríkisstjórnin fylgist mjög grannt með. Þingheimi er ljóst að það hefur komið upp á í sögunni að gripið sé til aðgerða og þá er það gert með stuttum fyrirvara þegar staðan er metin þannig að ekki sé annað fært en að grípa inn í.“
Alþingi Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verkföll flugumferðarstjóra Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira