„Ég er sáttur við það dagsverk“ Agnar Már Másson skrifar 30. júní 2025 17:46 Heiðursverðlaunin sem Helgi hlaut á Degi íslenskrar tónistar 2023, reyndust honum hvatning til að halda áfram að reka Glatkistuna en þá hafði hann verið á mörkum þess að hætta. Nú er komið að leiðarlokum. Dagur íslenskrar tónlistar Helgi Jónsson, ritstjóri Glatkistunnar, vonar að einhver taki að sér að reka tónlistargagnagrunninn þó hann hyggist sjálfur ekki lengur halda honum úti. Að óbreyttu ratar Glatkistan í glatkistuna eftir ár, en Helgi gengur sáttur frá borði.
Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag þá tilkynnti Helgi að hann hygðist loka Glatkistunni, sem er orðinn einn umfangsmesti gagnagrunnur um íslenskt tónlistarlíf. Illa hefur gengið að tryggja fjármagn til að halda vefnum gangandi, fáir hafa sýnt því áhuga á að auglýsa á vefnum og ríkisstyrkir eru af skornum skammti. Einkasafn sem varð að skepnu Vefsíðan varð til árið 2014 en Glatkistan á í raun rætur að rekja til aldamóta, þegar Helgi ákvað að koma sér upp skráningarkerfi fyrir plöturnar sínar, sem vatt síðan upp á sig og varð að þeirri skepnu sem Glatkistan er í dag. Þar má í dag finna um sex þúsund greinar um allt sem viðkemur íslenskri tónlist hvort sem það séu hljómsveitir, útgáfufélög, tónleikastaðir, hljómplötur og svo mætti lengi telja. Og hér er ekki aðeins um að ræða útgefnar hljómsveitir, heldur jafnvel bönd sem spiluðu aðeins einu sinni áður en þau leystust upp. Það er því margt í Glatkistunni sem finnst hvergi annars staðar. Einhverjir sýnt áhuga á kaupum Helgi segir að nokkrir hafi haft samband við sig frá því að hann birti tilkynninguna í gær um lokun Glatkistunnar. Hann segir að sumir hafi lagt inn fé inn á styrktarsjóð síðunnar í kjölfar fregnanna en aðrir hafi forvitnast um hugsanleg kaup á síðunni. Þannig að mögulega er ekki öll von úti um framtíð Glatkistunnar. Það fé sem fólk hefur lagt inn í dag og í gær dugar til að greiða fyrir hýsingu síðunnar út næsta árið, að sögn Helga, en framhaldið er óljóst. Síðustu verkefni Helga í bili verður að klára að skrá inn allt undir bókstafnum h, og hann er þegar kominn vel á leið. Engin svör frá ráðuneytinu „Stóra málið er náttúrulega með framtíðina, hvort það verði hægt að bæta við síðuna og svona,“ segir Helgi. Í vor hafi hann í tvígang sent erindi á menningarráðuneytið og Landsbókasafn til að spyrjast til um hvort stjórnvöld vildu taka að sér hýsingu síðunnar. En engin svör bárust og hann mat því svo að áhuginn væri ekki til staðar. „Það er ekkert inni í dæminu lengur,“ segir Helgi. Í því samhengi þykir blaðamanni skemmtilegt að nefna að Skriðjöklum, fyrrverandi hljómsveit Loga Einarssonar menningarráðherra, er gerð nokkuð góð skil á Glatkistunni. „En svo er það spurningin hvort einhverjir séu tilbúnir að kaupa þetta,“ bætir Helgi við. Hann er greinilega tilbúinn að sleppa takinu á Glatkistunni eftir tíu ára rekstur, en þrátt fyrir það selst hún ekki frítt enda hefur hann rekið síðuna í áratugi. „Þetta er auðvitað rosalegur gagnagrunnur og hann fer ekkert ókeypis,“ segir Helgi og hlær við. „Ég væri alveg opinn fyrir því ef einhvers konar tilboð kæmi inn í þetta þar sem ég væri ekki innni í dæminu.“ Allar lausar stundir hafi farið í þetta En muntu ekki sakna Glatkistunnar? Helgi svarar hikandi. „Já og nei. Ég er búinn að gera mitt og ég er sáttur við það dagsverk,“ segir hann. „Ég er búinn að hugsa þetta auðvitað. Ég er sáttur við það ef einhver annar tekur þetta að sér,“ bætir hann við. Hann segist í raun hafa lengi íhugað að loka vefnum, en þegar hann hlaut heiðursverðlaun Dags íslenskrar tónlistar 2023 hafi það verið hvatning til að halda aðeins áfram. En nú er komið að leiðarlokum. Helgi er framhaldsskólakennari að atvinnu og mun halda því áfram. „Það verður skrítið að koma loksins heim úr vinnunni og fara ekki strax að vinna í þessu til hliðar,“ segir hann, hikar og hlær örlítið við: „Eða reyndar eru þetta búnar að vera allar mínar frístundir síðasta áratug.“
Tímamót Tónlist Menning Mest lesið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Muniz skilinn Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Lífið samstarf Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Fleiri fréttir Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira