Lífið

Sjóð­heitar skvísur í ís­lenskri hönnun

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör í miðborginni í gærkvöldi.
Það var líf og fjör í miðborginni í gærkvöldi. Eygló Gísladóttir

Það var sannkölluð sumarstemning í miðborg Reykjavíkur síðastliðið miðvikudagskvöld þegar fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fagnaði nýrri sumarlínu með stórglæsilegu teiti í blíðskaparveðri. 

Fjölmörg kunnugleg andlit létu sjá sig og klæddust nýjustu sumarlínu Yeoman, þar á meðal voru Birgitta Líf , Ástrós Trausta, Fanney Ingvars, Berglind Festival, Brynja Dan, Svandís Dóra og Chanel Björk.

Yeoman skvísurnar.Eygló Gísladóttir

DJ Dóra Júlía sá um að halda upp tónlistarstuðinu, ásamt lifandi tónlistarflutningi frá hljómsveitinni Cyber. Gestir og gangandi skemmtu sér konunglega og tóku virkan þátt í gleðinni.

Nýja Kokomo-línan endurspeglar bæði gylltan ljóma suðrænnar paradísar og miðnætursólina á Íslandi. Hún færir þér hlýju, litadýrð og ómótstæðilegan sumaranda. 

Hildur hefur klætt fjöldann allan af áhugaverðum konum sem standa margar hverjar fremstar meðal jafningja á heimsvísu, m.a. Taylor Swift, Laufey, Kehlani, Ashley Graham og Björk. Hildur hannar föt fyrir konur af öllum stærðum og gerðum og leggur metnað í að skapa umhverfi sem rúmar alla. Fyrirtæki Hildar Yeoman er rekið af konum og hefur kraftur kvenna verið órjúfanlegur þáttur í hönnun Hildar frá upphafi.

Eygló Gísladóttir ljósmyndari fangaði stemninguna í sólinni. 

Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Rakel & Hildur Yeoman.Eygló Gísladóttir
Einar Þorsteinsson og Sigtryggur Magnason.
Eygló Gísladóttir
Hulda Halldóra og Milla Ósk.Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Skál í boðinu!Eygló Gísladóttir
Myndlistarmennirnir Daníel Björnsson og Hrafnhildur “Shoplifter”Eygló Gísladóttir
Guðrún, Helga Margrét og Hildur.Eygló Gísladóttir
Guðjón Tryggvason og Rúnar Logi.Eygló Gísladóttir
Veðrið lék við höfuðborgarbúa.Eygló Gísladóttir
Dýri Jónsson og Silja Hauksdóttir.Eygló Gísladóttir
Saga Sig stillir stelpunum upp.Eygló Gísladóttir
Erna Bergmann og Steinunn Eyja.Eygló Gísladóttir
Systurnar Sigga Soffía og Matthildur.Eygló Gísladóttir
Hljómsveitin Cyber, Jóhanna Rakel og Salka.Eygló Gísladóttir
Dóra Júlía og Draumey, dóttir Hildar.Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Það var líf og fjör á Laugaveginum.Eygló Gísladóttir
Hulda Halldóra, Fanney, Ástrós og Hildur.Eygló Gísladóttir
Pattra og Thea.Eygló Gísladóttir
Birna Rún, Ása Ninna og Sóley.Eygló Gísladóttir
Salka Björnsdóttir, Stormur Björnson og Íris Dögg Einarsdóttir.Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.