Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. apríl 2025 16:41 Frans páfi var 88 ára þegar hann lést á öðrum degi páska. EPA Frans páfi lést í morgun en ítalskir miðlar greina frá að dánarorsökin hafi verið heilablóðfall. Páfinn var lengi heilsuveill vegna alvarlegra veikinda í lungum.
Ítalski miðill Corriere della Sera segir það staðfest að dánarorsök páfans, sem lést rúmlega hálf átta í morgun að staðartíma, hafi verið heilablóðfall. Búist er við formlegri tilkynningu frá Vatíkaninu í kvöld þar sem greint verður frá dánarorsök hans. Frans páfi, fæddur sem Jorge Mario Bergoglio, var 88 ára að aldri þegar hann lést og hafði sinnt embætti páfa í alls tólf ár. Fyrr á þessu ári var Frans páfi lagður inn á sjúkrahús þar sem hann dvaldi í 38 daga vegna meðferðar við berkjubólgu. Árið 1958 var hluti úr öðru lunga páfans fjarlægður og hafði hann síðan glímt við reglulegar berkju- og lungabólgur. Samkvæmt ítalska miðlinum la Prepubilca var dánarorsök páfans ekki tengd lungnavandamálum hans. Hann hélt síðasta ávarp sitt í gær á páskadag og blessaði margmennið sem saman hafði komið á Péturstorgi til að fagna upprisunni. Fjöldinn allur af þjóðarleiðtogum hefur minnst páfans í dag.
Páfagarður Andlát Frans páfa Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Sjá meira