Tekur við sem verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu Atli Ísleifsson skrifar 21. mars 2025 08:28 Elísabet Indra Ragnarsdóttir. Harp Elísabet Indra Ragnarsdóttir hefur tekið við stöðu verkefnastjóra dagskrárgerðar í Hörpu.
Í tilkynningu segir að Elísabet Indra hafi verið valin úr hópi um sextíu umsækjenda um starfið sem feli í sér yfirumsjón með viðburðum og fjölskyldudagskrá á vegum Hörpu auk helstu samstarfsverkefna og ókeypis tónlistaviðburða í opnum rýmum hússins. „Elísabet Indra hefur margþætta reynslu úr menningarlífinu en hún hefur starfað við verkefna- og viðburðastjórnun á sviði menningarmála hjá Kópavogsbæ, Listaháskóla Íslands, Mengi, Listahátíð í Reykjavík og Reykjavík Midsummer Music. Hún starfaði um árabil sem dagskrárgerðarmaður hjá Rás 1 þar sem hún stýrði menningarþáttum af ólíku tagi. Hún hefur tekið að sér fjölbreytt verkefni á sviði tónlistarumfjöllunar og miðlunar, meðal annars fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og gegnt trúnaðarstörfum fyrir STEF, Sumartónleika í Skálholti, Tónskáldafélag Íslands, RÚV og Hörpu. Elísabet Indra er með MA í tónlistarfræðum frá Goldsmiths College í London, BA í íslensku frá HÍ og fiðlukennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún hefur lokið diplómu í heimilda- og fléttuþáttagerð fyrir útvarp og stundað nám í menningarmiðlun við HÍ. Hún hefur starfað sem viðburða- og verkefnastjóri menningarmála hjá Kópavogsbæ frá árinu 2020,“ segir í tilkynningunni.
Harpa Menning Vistaskipti Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira