Guðjón stýrði til sigurs en svekkjandi tap hjá lærisveinum Rúnars Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. desember 2024 17:39 Guðjón Valur Sigurðsson og Rúnar Sigtryggsson, þjálfarar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. vísir / samsett Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach eru snúnir aftur á sigurbraut. Lærisveinar Rúnars Sigtryggsonar í Leipzig þurftu hins vegar að sætta sig við svekkjandi tap í þrettándu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.
Gummersbach - Erlangen 28-24 Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach eru snúnir aftur á sigurbraut eftir tap gegn Kiel í síðustu umferð. Gummerbach tók á móti Erlangen í dag og vann 28-24. Stóra skyttan Miro Schhluroff var markahæstur heimamanna með sjö mörk og fullkomna nýtingu. Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar. Elliði Vignisson tók ekki þátt í leiknum. Gummersbach hefur verið á fínu flugi í deildinni og vann fimm leiki í röð fyrir tapið gegn Kiel í síðustu umferð. Liðið situr nú í sjöunda sæti með sextán stig eftir tólf leiki. Andstæðingur þeirra, Erlangen, er hins vegar í sextánda sæti, rétt fyrir ofan fallsvæðið. HSV - Leipzig 33-32 Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson spiluðu báðir í svekkjandi tapi Leipzig, á útivelli gegn HSV. Leipzig leiddi allan leikinn og var með tveggja marka forystu þegar minna en tíu mínútur voru eftir, en hélt ekki út og tapaði með einu marki. Andri Már skoraði tvö mörk og Viggó skoraði fimm mörk. Leipzig, sem spilar undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, situr í tólfta sæti deildarinnar með sex sigra og sjö töp. HSV er einu stigi og tveimur sætum ofar.
Þýski handboltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira