Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. nóvember 2024 07:04 Tom í húsakynnum Solid Clouds á Eiðistorgi í bol sem lýsir í engu hæfni hans í Starborne né á sviði stjarneðlisfræði. Vísir/Vilhelm Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins. „
Stjörnurnar röðuðu sér þannig upp að þetta gekk upp,“ segir Tom sem settist niður með Vísi ásamt markaðsstjóra Solid Clouds Aroni Ólafssyni sem eyddi síðustu viku í að taka á móti Tom og félögum hans frá Bretlandi og Eistlandi. Þeir eiga það allir sameiginlegt að spila íslenska fjölspilunar- og herkænskuleikinn Starborne: Frontiers. „Mig hefur alltaf langað til þess að koma til Íslands, svo hef ég kynnst mörgum af mínum bestu vinum í leiknum og líka meðal starfsfólks hjá Solid Clouds. Hingað ætluðu sér nokkrir aðrir spilarar að mæta þannig þetta var líka frábært tækifæri til þess að hitta fleiri,“ útskýrir Tom. Þétt samfélag „Starfsfólk Solid Clouds hefur alltaf verið mjög umhugað um samfélagið sem þetta er orðið sem spilar leikinn. Við eigum okkar hóprás á Discord og þar fór ég að tala við fólk og svo fljótlega kynnast því þegar ég fór að spila leikinn á sínum tíma, þetta er virkilega þétt samfélag,“ segir Tom sem eins og áður segir er stjarneðlisfræðingur. Sem slíkur hafði Tom ýmsa punkta fram að færa enda gerist söguheimur Starborne í geimnum. Solid Clouds var stofnað í Reykjavík árið 2013 af Stefáni Gunnarssyni, Stefáni Björnssyni og Sigurði Arnljótssyni. Fyrsti leikur fyrirtækisins hét Sovereign Space en seinni leikur þess Starborne Frontiers kom út í fyrra. Leikurinn gengur út á herkænsku þar sem spilarar setja sig í hlutverk flotaforingja sem safnar og uppfærir flota til að kanna, skipuleggja og sigra Starborne alheiminn sem er fullur af spennu og bardögum. „Ég sat heima hjá mér að spila Civilization þegar ég rakst á auglýsingu fyrir fyrsta leikinn á Youtube. Það var talað um að þetta væri líkt og Civilization í geimnum og þú getur rétt ímyndað þér hvað ég var fljótur að slá til!“ segir Tom hlæjandi. Hann var fljótur að taka ástfóstri við Starborne heiminum þar sem hann kynntist Aroni og félögum hjá Solid Clouds í gegnum Discord og var meðal fyrstu spilara til þess að fá að prufa báða leiki. Aron og Tom er vel til vina eftir heimsókn hins síðarnefnda til Íslands.Vísir/Vilhelm Fékk að ýta uppfærslunni úr vör Tom og félagar hafa haft nóg fyrir stafni í heimsókn sinni hér á landi. Þannig hafa Aron og félagar verið duglegir að fara með þeim út á land, gullna hringinn svo fátt eitt sé nefnt. Að sögn Arons var það mikilvægasta gert fyrsta daginn. „Við vorum löngu búin að tilkynna útgáfudag og þegar kom að deginum beið samfélagið okkar með öndina í hálsinum, fyrirspurnunum rigndi yfir okkur á Discord um það hvers vegna við værum ekki búin að uppfæra leikinn,“ segir Aron hlæjandi. Þá átti einn af erlendum gestum fyrirtækisins eftir að mæta. „Það var allt klárt en við biðum bókstaflega á skrifstofunni eftir síðasta gestinum, náðum í hann út á flugvöll og keyrðum beint á skrifstofuna þar sem við leyfðum þeim félögum að ýta á takkann sem ýtti uppfærslunni úr vör,“ segir Aron. Tom segir það hafa verið það síðasta sem hann hafi búist við að fá að gera. Með uppfærslunni eiga þeir félagar við Imperium viðbótina sem er sú fyrsta í leiknum. Í viðbótinni líta fjögur stór leikkerfi dagsins ljós, leiðtogakerfi, iðnaðarkerfi, kerfi sem kennt er við stríðandi fylkingar og kerfi boðbera. „Ég bjóst náttúrulega alls ekki við því að fá að gera þetta,“ segir Tom. „Þetta var virkilega skemmtilegt og mjög hátíðlegt allt saman, eða eins hátíðlegt og hægt er að ýta á takka,“ segir hann hlæjandi. Hæverskur er bestur Þá berst talið að leiknum sjálfum. Tom segist tala við sirka tíu til tuttugu manns vegna leiksins á degi hverjum en þegar Tom byrjaði að spila voru einungis tólf aðrir spilarar, þegar fyrri Starborne leikurinn var á prufustigi. „En hugarfarið hefur ekkert breyst, það skiptir engu máli hvar þú ert staddur í leiknum, hvernig þú spilar eða hversu mikið þú kannt, samfélagið hefur alltaf snúist um að hjálpa hvort öðru, athuga hvað er hægt að gera, hvernig er hægt að spila leikinn á nýjan hátt og svo framvegis,“ segir Tom. Og þú ert besti spilari í heimi í leiknum? „Tjaaaaaaaaaa, ég er mjög ástríðufullur fyrir leiknum og ég spila hann mjög mikið,“ segir Tom. Hæverskan að fara með hann og Aron grípur orðið. „Hann er besti spilarinn í leiknum. Hann er kominn lengst og hefur afar djúpan skilning á leiknum, stundum dýpri en við. Hann tekur þetta skrefinu lengra og er með allskyns hugmyndir sem hafa aðstoðað okkur mikið í ferlinu við að búa til leikinn. Þetta sést líka á leiðtogatöflum í leiknum.“ Hann hrósar Tom í hástert, sem alltaf hafi gert sitt besta til þess að aðstoða aðra spilara. Þannig hafi skapast ákveðin menning í leiknum þar sem spilarar aðstoða hver aðra, meðal annars þegar fundnar eru nýjar leiðir til að spila ólíkum herskipum saman í leiknum svo eitthvað sé nefnt. En hvar eru þá allir drullusokkarnir í leiknum? „Sko, mér finnst það skemmtilegasta við leikinn að finna nýja hluti til að gera, nýja herkænsku til að beita og þegar ég finn þær þá vil ég ekki gera þetta einn, ég vil annað fólk með mér. Eins og Aron segir, þá er ég á toppnum en ég vil láta ögra mér og ef ég finn eitthvað nýtt þá vil ég sýna öðrum það til að hjálpa þeim og gera samfélagið enn betra. Það er hugarfarið og það er þannig hjá flestum spilurum. Það er auðvelt að gera það sama og aðrir en þegar maður uppgötvar eitthvað nýtt þá er ekkert skemmtilegra en að deila því með öðrum. Tom segist himinlifandi með heimsókn sína til Íslands. Einungis tveir mánuðir eru síðan hann sló til og tilkynntu þeir félagar Solid Clouds einfaldlega að þeir væru á leiðinni, eða svona því sem næst. „Við ákváðum eiginlega bara að skipuleggja okkar eigið FanFest og næstum tilkynntum þeim hjá Solid Clouds að við værum að mæta,“ segir Tom hlæjandi. Aron segir alla hafa verið himinlifandi að fá þá félaga í heimsókn. „Þetta fjörutíu tíma ferðalag hingað var klárlega þess virði,“ segir Tom.
Leikjavísir Seltjarnarnes Solid Clouds Ástralía Íslandsvinir Tengdar fréttir Starborne Frontiers nú aðgengilegur í snjalltækjaverslunum Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur nú gert nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, aðgengilegan í snjalltækjaverslunum Apple og Google. 17. febrúar 2023 08:48 Mest lesið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Lífið samstarf Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira
Starborne Frontiers nú aðgengilegur í snjalltækjaverslunum Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur nú gert nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, aðgengilegan í snjalltækjaverslunum Apple og Google. 17. febrúar 2023 08:48