Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. september 2024 08:12 Stúlkan fannst í verslun Target, að drekka frappó úr Starbucks. Getty/Gado/Smith Collection Lögregluyfirvöldum í Bedford í Ohio í Bandaríkjunum bárust tilkynningar á sunnudag um átta ára stúlku og fjölskyldubifreið sem var saknað og ökumann sem ók fremur furðulega.
Tilkynningarnar reyndust tengdar. Fyrri tilkynningin barst rétt fyrir klukkan níu á sunnudagsmorgun þegar móðir hafði samband við 911 og tilkynnti að átta ára dóttir sín væri týnd. Þá sagði hún að fjölskyldubifreiðin, Nissan Rogue, væri einnig horfin. Stúlkan sást síðast um klukkan sjö sama morgun. Nágranni sá á öryggismyndavél sinni og gat upplýst lögreglu um að stúlkan hefði farið inn í bifreiðna og ekið á brott. Á svipuðum tíma barst tilkynning um ökumann í ökutæki sem svipaði til Rogue bifreiðarinnar en tilkynnandinn, Justin Kimery, sagðist telja að ökumaðurinn væri veikur eða undir áhrifum. Kimery fylgdist með bifreiðinni á meðan hann ræddi við 911 og reyndi að sjá inn í Rogue bifreiðina þegar hún ók framhjá. Hann gat hins vegar varla séð ökumanninn vegna hæðar hans. Hann reyndi að gefa viðkomandi merki um að hægja sér eða stoppa en ökumaðurinn hélt bara áfram. Það var ekki fyrr en seinna sem hann komst að því að ökumaðurinn var átta ára stúlka. Það voru lögregluyfirvöld í nágrannabænum Bainbridge sem fundu bifreiðina að lokum, tveimur tímum síðar, fyrir utan Target. Stúlkan var inni í versluninni og hafði fengið sér frappuchino í Starbucks. Hún játaði fyrir lögreglu að hafa ekið á póstkassa á leiðinni.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira