Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Lovísa Arnardóttir skrifar 15. maí 2024 10:01 Regnbogakortið mælir lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum Evrópu og Mið-Asíu. Vísir/Ívar Fannar Ísland er einn af hástökkvurunum Regnbogakorts ILGA-Europe, regnhlífarsamtaka yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu í ár, og fer upp í annað sæti úr því fimmta. Í tilkynningu kemur fram að Ísland uppfylli nú um 83 prósen af þeim viðmiðum sem ILGA-Europe setur.
Um töluverða breytingu yfir lengri tíma er að ræða. Fyrir sjö árum var Ísland sem dæmi í 17. sæti og uppfyllti aðeins 47 prósent af þeim viðmiðum sem settu eru fram. Kortið er aðgengilegt hér. Hægt er að skoða kortið eftir nokkrum flokkum eins og hatursorðræðu, fjölskyldulífi og hælisleitendur. Í öllum flokkum sem í boði eru er Ísland yfir meðaltali í Evrópu og Evrópusambandinu. Í tilkynningu frá Samtökunum ´78 segir að meðal jákvæðra breytinga á Íslandi sé að um síðustu áramót hafi tekið gildi lög um bann við bælingarmeðferð. Eins hafi teymi heilbrigðiskerfisins sem þjónusta trans fólk bætt áætlanir og þjónustu sína í samræmi við lög um kynrænt sjálfræði, sem enn er verið að vinna inn í reglugerðir og áætlanir. Þá hafi einnig breytur sem tengjast hinseginleikanum, eins og kynhneigð, kynvitund og kyneinkenni, verið bætt við 70. grein almennra hegningarlaga er varðar þætti sem hafa áhrif á refsihæð glæpa. Eftir því sem farið er austar verður staðan verri. Skjáskot/Regnbogakort ILGA Europe „Það er sannarlega gleðiefni hve Regnbogakortið lýsir miklum árangri í málefnum hinsegin fólks hér á landi. En á meðan við fögnum árangrinum hér á Íslandi býr hinsegin fólk í víða í Evrópu og Mið-Asíu enn við mikla ólgu, óvissu og óöryggi. Pólitískur ágreiningur um réttarstöðu hinsegin fólks hefur orðið til þess að lönd detta niður listann eða standa í stað,“ segir í tilkynningu Samtakanna ´78 um málið og að í sumum löndum megi rekja fallið beint til skipulags áróðurs sem beitt hefur verið gegn trans fólki. Bretland og Norðurlönd falla á listanum „Sums staðar er slíkum áróðri og hinsegin réttindum almennt beitt sem pólitísku vopni af stjórnmálafólki og stjórnmálaflokkum. Það er rétt að minnast þess að svo grafalvarleg staða er ekki bara uppi í löndum fjarri og ólíkum Íslandi, heldur til dæmis í nágrannalöndum eins og Bretlandi sem hefur fallið hratt niður Regnbogakortið undanfarin ár.“ Þá er bent á að öll hin Norðurlöndin falli niður listann því ekki hafi verið hægt að endurskrifa aðgerðaráætlanir í málaflokknum. „Það er því mikilvægt að muna að baráttan fyrir lagalegum réttindum hinsegin fólks er síður en svo unnin,“ segir að lokum.
Hinsegin Mannréttindi Hælisleitendur Bretland Tengdar fréttir Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Í dag fögnum við hjá Samtökunum ’78 þeim árangri sem náðst hefur í að bæta réttindastöðu hinsegin fólks á Íslandi. Árlega birtir ILGA-Europe, regnhlífarsamtök yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu, nýja útgáfu regnbogakortsins en kortið mælir lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum. 15. maí 2024 08:46 „Grátbroslegt“ að Ísland sé í fyrsta sæti hvað varðar réttindi trans fólks Formaður Trans Íslands segir það grátbroslega staðreynd að réttindi transfólks séu hvergi jafn góð og hér á landi. Hinsegin fólk hefur aldrei búið við jafn sterka lagalega vernd á Íslandi og nú. 11. maí 2023 20:00 Full ástæða til að halda áfram að kortleggja hatursorðræðu á Íslandi Fulltrúar frá á þriðja tug hagsmunasamtaka hafa sótt fundi starfshóps forsætisráðherra gegn hatursorðræðu en formaður hópsins segir ljóst að ákveðnir hópar komi verr út en aðrir. Þó erfitt sé að meta hvort hatursorðræða fari beinlínis vaxandi hér á landi sé full ástæða til að halda vinnunni áfram. 4. október 2022 14:01 Ísland upp um fimm sæti á Regnbogakorti Evrópu Ísland hækkar um fimm sæti á milli ára á Regnbogakorti ILGA Europe. Ísland er nú komið í níunda sæti en var í því fjórtánda í fyrra. Utanríkisráðherra segir lög um kynrænt sjálfræði spila stórt hlutverk í þessari þróun. 12. maí 2022 11:42 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira
Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Í dag fögnum við hjá Samtökunum ’78 þeim árangri sem náðst hefur í að bæta réttindastöðu hinsegin fólks á Íslandi. Árlega birtir ILGA-Europe, regnhlífarsamtök yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu, nýja útgáfu regnbogakortsins en kortið mælir lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum. 15. maí 2024 08:46
„Grátbroslegt“ að Ísland sé í fyrsta sæti hvað varðar réttindi trans fólks Formaður Trans Íslands segir það grátbroslega staðreynd að réttindi transfólks séu hvergi jafn góð og hér á landi. Hinsegin fólk hefur aldrei búið við jafn sterka lagalega vernd á Íslandi og nú. 11. maí 2023 20:00
Full ástæða til að halda áfram að kortleggja hatursorðræðu á Íslandi Fulltrúar frá á þriðja tug hagsmunasamtaka hafa sótt fundi starfshóps forsætisráðherra gegn hatursorðræðu en formaður hópsins segir ljóst að ákveðnir hópar komi verr út en aðrir. Þó erfitt sé að meta hvort hatursorðræða fari beinlínis vaxandi hér á landi sé full ástæða til að halda vinnunni áfram. 4. október 2022 14:01
Ísland upp um fimm sæti á Regnbogakorti Evrópu Ísland hækkar um fimm sæti á milli ára á Regnbogakorti ILGA Europe. Ísland er nú komið í níunda sæti en var í því fjórtánda í fyrra. Utanríkisráðherra segir lög um kynrænt sjálfræði spila stórt hlutverk í þessari þróun. 12. maí 2022 11:42