Fótbolti

Leverkusen lætur ekki undan og lagði Roma á úti­velli

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Robert Andrich og Jeremy Frimpong fagna öðru marki Leverkusen.
Robert Andrich og Jeremy Frimpong fagna öðru marki Leverkusen. Image Photo Agency/Getty Images

Bayer Leverkusen vann 2-0 útivallarsigur gegn Roma á meðan Marseille og Atalanta skildu jöfn 1-1 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. 

Gianluca Scamacca kom Atalanta yfir á 11. mínútu leiks gegn Marseille eftir góðan undirbúning Teun Koopmeiners. Heimamenn Marseille jöfnuðu aðeins níu mínútum síðar þegar varnarmaðurinn Chancel Mbemba kom boltanum í netið. 

Í leik Leverkusen gegn Roma kom Florian Wirtz gestunum yfir á 28. mínútu. Robert Andrich tvöfaldaði svo forystuna á 73. mínútu og kom gestunum í góða stöða fyrir seinni leikinn. 

Liðin mætast aftur að viku liðinni, fimmtudaginn 9. maí klukkan 19:00. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×