Atvinnulíf

Krónísk ó­stund­vísi: Skýringar og góð ráð

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Krónísk óstundvísi er fyrirbæri sem er til, mörgum til ama og kostar vinnuveitendur peninga. Krónísk óstundvísi er til dæmis algengur fylgifiskur fólks með ADHD og í áratugi hafa vísindamenn rannsakað hvers vegna sumir eru alltaf of seinir, en aðrir ekki.
Krónísk óstundvísi er fyrirbæri sem er til, mörgum til ama og kostar vinnuveitendur peninga. Krónísk óstundvísi er til dæmis algengur fylgifiskur fólks með ADHD og í áratugi hafa vísindamenn rannsakað hvers vegna sumir eru alltaf of seinir, en aðrir ekki. Vísir/Getty

Í vikunni birtist frétt um að Hollywodd-stjarnan Dwayne Johnson, betur þekktur sem The Rock og af blaðamanni Vísis kallaður Steini, hafi verið sakaður um króníska óstundvísi við tökur á myndinni Red One.

Segir í fréttinni að þessi óstundvísi hafi valdið því að kostnaður myndarinnar jókst um tugi milljóna Bandaríkjadala.

Enda já: Óstundvísi bitnar oftast á öðru fólki og kostar vinnuveitendur peninga.

En hvað er krónísk óstundvísi og er hún yfir höfuð fyrirbæri sem er skilgreind sem slík? Svarið er já og það sem meira er: Krónísk óstundvísi hefur verið rannsökuð í áratugi.

Þrátt fyrir það er engin ein einföld skýring á því hvers vegna sumum er svona tamt að vera alltaf of seinir, á meðan aðrir upplifa stundvísi sem sjálfsagðan hlut.

Sem dæmi um niðurstöður úr rannsóknum má nefna að krónísk óstundvísi er algeng hjá fólki sem almennt vanmetur þann tíma sem það tekur að gera hitt og þetta. Þetta vanmat á tímanum er sagt vera allt að 40%.

Þá hafa rannsóknir sýnt að óstundvísi er oft vísbending um að viðkomandi sé það sem á ensku kallast „multi-tasker,“ eða einstaklingur sem er gjarn á að gera marga hluti í einu.

Loks eru rannsóknir sem sýna að fólk getur einfaldlega upplifað tíma á mjög ólíkan hátt, sem aftur gerir sumum erfitt með að mæta á réttum tíma.

En hvað er til ráða?

Jú, vissulega er hægt að leita fanga í ýmsum góðum ráðum. 

Á vefsíðunni ADDitude er hægt að finna ýmsar skýringar og góð ráð, sem beinast sérstaklega að fólki sem er með ADHD. 

En við ætlum að rýna í góð ráð sem birt voru í grein Washington Post. Þar er einnig vísað í athyglisbrest og það útskýrt, hvers vegna óstundvísi er oft fylgifiskur þess að vera með ADHD.

En þó koma líka fram ýmsar aðrar skýringar. 

  • Fyrst má nefna fólk sem glímir við fullkomnunaráráttu. Hún getur þá leitt til þess að viðkomandi er til dæmis lengi að hafa sig til, vill undirbúa sig betur eða klára að gera eitthvað betur þótt það þýði að viðkomandi verður of seinn.
  • Næst má nefna þann hóp fólks sem við í daglegu tali tölum stundum um sem spennufíkla. Þetta er fólk sem þrífst á því að finna adrenalínið flæða, til dæmis vegna þess að það er orðið alltof seint.
  • Síðan er þá Já-fólkið, en þessi hópur á það til að vera of seinn einfaldlega vegna þess að það kann illa að segja Nei við annað fólk, með þeim afleiðingum að það mætir of seint.
  • Loks eru það uppreisnarseggirnir. Sem er svo mikið í mun að vera upp á kant við allt og alla, mótmæla öllu eða að fylgja ekki reglum, að það meira að segja mætir oftast of seint.

Hér eru hins vegar góðu ráðin, sem sérfræðingar segi að hjálpi:

  • Gerðu raunhæfa tímaáætlun; til dæmis hversu langan tíma það tekur að komast frá stað A til B.
  • Vertu með klukkur sýnilegar á mjög mörgum stöðum og alltaf; úr, veggklukkur, vekjaraklukkur, ofnklukkur, klukkan í tölvunni, símanum og svo framvegis.
  • Notaðu vekjaraklukku eða tímaklukku sem oftast. Því hluti af vanda fólks sem er óstundvíst er að það er mjög gjarnt á að einfaldlega gleyma sér.
  • Settu þér tímamörk og horfðu frekar á þessi tímamörk en að klára verkefnalista. Ef tíminn rennur út, þarftu að hætta og leggja af stað, þótt þú sért ekki búin/n með verkefnin.
  • Þegar þú átt að mæta einhvers staðar innan skamms, er mikilvægt að byrja helst ekki á neinu öðru sem er tímafrekt eða mjög skemmtilegt. Það á líka við um atriði eins og að vafra á netinu, á samfélagsmiðlum, spila tölvuleiki og svo framvegis. 
  • Skráðu öll verkefni og skyldur þannig að þú sért með yfirsýn yfir þau og gott skipulag á hlutunum vel fram í tímann.
  • Einsettu þér að sjá fyrir þér hvernig þér líður þegar þú nærð að mæta á réttum tíma á tiltekinn stað, í samanburði við tilfinninguna að mæta of seint.

Stjórnendum og samstarfsfólki er bent á að ef tilefni er til að ræða við einhvern um óstundvísi, er það samtal sem taka á auglitis til auglitis en ekki í opnu rými og innan um aðra. Því óstundvísi er persónulegt vandamál.


Tengdar fréttir

Óstundvísi: Alltaf sama fólkið og stuðar alla í kring

Það er einn hundleiðinlegur vani sem því miður sumir hafa: Þeir eru alltaf of seinir. Mæta aðeins of seint til vinnu. Eru aðeins lengur í hádegismat, mætir síðast á alla fundi og svo framvegis.

Ekkert grín að vera óstundvís

Óstundvísi er hvimleiður vani en kannski gera margir sér ekki grein fyrir því að það getur verið mun erfiðara að venja sig af óstundvísi en virðist í fyrstu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×