Sport

Bald­vin með Ís­lands­met og hárs­breidd frá því að tryggja sig inn á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Baldvin Þór Magnússon stefnir á Ólympíuleikana í París.
Baldvin Þór Magnússon stefnir á Ólympíuleikana í París.

Baldvin Þór Magnússon setti nýtt Íslandsmet í fimm þúsund metra hlaupi í gær.

Baldvin sló Íslandsmetið á móti á Spáni þegar hann hljóp á þrettán mínútum og 20,34 sekúndum. Gamla metið hans frá því fyrir tveimur árum var þrettán mínútur og 32,47 sekúndur.

Aðeins munaði 0,35 sekúndum að Baldvin hefði tryggt sig inn á Evrópumeistaramótið í Róm í sumar. Hann fær þó fleiri tækifæri til þess.

Baldvin vann sér einnig inn mikilvæg stig í baráttunni um að komast inn á Ólympíuleikana í París í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×