Innlent

Viktor og Kári hel­tast úr lestinni

Árni Sæberg skrifar
Viktor Traustason verður ekki á kjörseðlinum í sumar.
Viktor Traustason verður ekki á kjörseðlinum í sumar. Vísir/Vilhelm

Tvö framboð til embættis forseta Íslands voru úrskurðuð ógild á fundi Landskjörstjórnar í dag. Þeir Viktor Traustason og Kári Vilmundarson Hansen fá ekki pláss á kjörseðlinum þegar kosið verður til forseta þann 1. júní næstkomandi.

Landskjörstjórn kvað upp úrskurði sína um þau þrettán framboð sem bárust nefndinni á föstudag. Ellefu þeirra voru úrskurðuð gild en tvö ógild. Því verða fleiri framboð til forseta en nokkru sinni áður.

Senuþjófurinn dottinn út

Þeir Viktor og Kári komu nokkuð óvænt fram á sviðið á föstudag. Kári skilaði framboði sínu rafrænt en Viktor mætti sjálfur í Hörpu og stal senunni. 

Í samtali við fréttastofu segir Viktor að hann hafi ekki enn náð að lesa í gegnum úrskurð nefndarinnar og hafi því ekki ákveðið hvort hann muni kæra úrskurðinn.

Skilaði aðeins níu undirskriftum

Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, sagði að fundi loknum að annað framboðið hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um meðmælendalista, heimilisföng og kennitölur meðmælenda hafi skort og verulega hafi  vantað upp á fjölda meðmælenda.

Landskjörstjórn boðaði til fundar í Þjóðminjasafninu í dag.Vísir/Vilhelm

Hitt framboðið hafi aðeins skilað inn níu undirskriftum meðmælenda.

Ástþór Magnússon skilaði inn nægilega mörgum meðmælum að þessu sinni.Vísir/Vilhelm



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×