Sport

Dag­skráin í dag: Enski bikarinn, NBA, tvö Bayern lið og Lengjubikar kvenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Erling Haaland og Trent Alexander-Arnold í baráttunni fyrr á leiktíðinni.
Erling Haaland og Trent Alexander-Arnold í baráttunni fyrr á leiktíðinni. Getty/Shaun Botterill

Eins og vanalega á laugardögum verður nóg um að vera á sportstöðvunum Stöðvar 2 í dag en hér má finna stutt yfirlit yfir beinu útsendingar dagsins.

Átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar fara fram um helgina og tveir leikjanna verða í beinni í dag. Ríkjandi bikarmeistarar Manchester City spila seinni leikinn sem er á heimavelli á móti Newcastle.

Bæði Bayern München liðin verða líka í beinni í dag. Glódís Perla Viggósdóttir og félagar í kvennaliðinu reyna að halda toppsætinu en það verður líka fróðlegt að sjá hvort karlalið Bayern nái að setja einhverja smá pressu á Leverkusen á toppnum í Þýskalandi.

Eins mun koma í ljós hvort sigurganga Þór/KA haldi áfram í Lengjubikar kvenna í fótbolta og þá verða sýndir tveir leikir í beinni úr ítölsku deildinni. Það verða líka sýndir fleiri leikir frá Þýskalandi sem og leikur úr spænska körfuboltanum.

Kvöldið endar siðan á leik úr NBA-deildinni í körfubolta og leik í sex þjóða mótinu í rúgbý.

Stöð 2 Sport

Klukkan 14.55 hefst útsending frá leik Þór/KA og Stjörnunni í Lengjubikar kvenna í fótbolta

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 12.05 hefst útsending frá leik Wolves og Coventry í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta.

Klukkan 17.20 hefst útsending frá leik Manchester City og Newcastle United í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta.

Klukkan 21.00 hefst útsending frá leik Houston Rockets og Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 16.50 hefst útsending frá leik Salernitana og Lecce í ítölsku Serí A deildinni í fótbolta.

Klukkan 19.35 hefst útsending frá leik Baxi Manresa og Gran Canaria í spænsku ACB-deildinni í körfubolta.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 19.35 hefst útsending frá leik Frosinone og Lazio í ítölsku Serí A deildinni í fótbolta.

Vodafone Sport

Klukkan 10.55 hefst útsending frá leik Bayern München og RB Leipzig í þýsku kvennadeildinni í fótbolta.

Klukkan 14.20 hefst útsending frá leik Darmstadt 98 og Bayern München í þýsku karladeildinni í fótbolta.

Klukkan 17.20 hefst útsending frá leik Hoffenheim og Stuttgart í þýsku karladeildinni í fótbolta.

Klukkan 19.55 hefst útsending frá leik Frakklands og Englands í Six Nations keppninni í rúgbý.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×