Vilja breyta stjórnarskrárákvæði um störf konunnar inni á heimilinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. mars 2024 11:26 Forsætisráðherrann hefur hvatt Íra til að samþykkja breytingarnar á stjórnarskránni. epa/Georgi Licovski Það mun verða skref aftur á bak ef Írar samþykkja ekki breytingar á stjórnarskrá landsins, sem mið að því að uppfæra hana í takt við nútímann.
Þetta sagði Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, í ræðu í Bucharest á miðvikudag. Írar ganga á morgun til þjóðaratkvæðagreiðslu um tvær breytingar á stjórnarskránni, sem varða orðalag um „konuna á heimilinu“ og hvernig talað er um fjölskylduna. Stjórnarskráin er frá 1937 og í henni er meðal annars að finna ákvæði þar sem segir að inni á heimilinu sinni konan störfum og sé þannig stuðningur við ríkið sem sé ómissandi fyrir almannahag. Þannig skuli ríkið sjá til þess að konan sé ekki tilneydd til að sinna störfum á vinnumarkaði sem koma niður á störfum hennar innan heimilisins. Samkvæmt tillögunni sem liggja fyrir verður ákvæðið tekið út en annað sett inn í staðinn þar sem ríkið er skuldbundið til að viðurkenna það framlag sem felst í umönnun ástvina og freista þess að styðja fólk í þeim störfum. Hin tillagan varðar skilgreininguna á fjölskyldunni og þar verður sú breyting á að í stað þess að tala um hjónaband sem grunnstoð fjölskyldunnar, þá verður talað um „varanlegt samband“. Varadkar segir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar munu sýna hvaða gildi Írar vilja heiðra. Samkvæmt skoðanakönnunum eru fleiri fylgjandi breytingunum en ekki, en 35 prósent segjast óákveðnir og þá er spáð dræmri kostningaþátttöku. Guardian greindi frá.
Írland Jafnréttismál Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira