Menning

Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum upp­selt fyrir opnun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var troðfullt út úr dyrum á opnun á nýju rými hjá Gallery Porti á laugardaginn. Listunnendur létu sig ekki vanta og var erfitt að næla sér í verk á opnuninni.
Það var troðfullt út úr dyrum á opnun á nýju rými hjá Gallery Porti á laugardaginn. Listunnendur létu sig ekki vanta og var erfitt að næla sér í verk á opnuninni. Þórsteinn Svanhildarson

Það var margt um manninn í opnun á nýju rými Gallery Ports síðastliðinn laugardag. Nokkrar stórstjörnur íslenskrar myndlistar stóðu þar á samsýningunni Lost Track en gestir biðu í röð eftir að komast inn og fullt var út úr dyrum. 

Í fréttatilkynningu segir: 

„Gallery Port hefur flutt sig um set af Laugaveginum yfir á Hallgerðargötu 19-23 á Kirkjusandi. Laugardaginn 2. mars opnaði þar fyrsta sýningin, samsýningin Lost Track. Þar koma saman myndlistarmennirnir Baldur Helgason, Claire Paugam og Loji Höskuldsson.

Þessi fyrsta opnun á nýjum stað var með þeim fjölsóttustu sem Gallery Port hefur haldið en fyrir opnun var á þriðja tug gesta fyrir utan að bíða eftir að komast á sýninguna.“

Fjöldinn allur af fólki mætti á opnun samsýningarinnar Lost Track.Þórsteinn Svanhildarson

Það er mikill áhugi á myndlist í dag enda var það svo að fyrir opnun voru öll verk eftir Loja Höskuldsson seld. Sömuleiðis var búið að taka frá og kaupa verk Baldurs Helgasonar en Baldur á verk í mörgum einkasöfnum bæði hérlendis og erlendis. Hann var viðmælandi í Vísisþættinum Kúnst í fyrra sem má sjá hér: 

„Hin franska Claire Paugam var kontrastinn á milli þeirra Baldurs og Loja en hún vinnur mikið með ljósmyndir og innsetningar, en hún er mjög efnileg ung listakona sem hlaut meðal annars Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna 2020.

Fullt hús og mikil veisluhöld og það er óhætt að segja að mikið líf hafi færst yfir Kirkjusandinn við þessa viðbót að fá Gallery Port í hverfið,“ segir jafnframt í tilkynningunni. 

Verk Claire Paugam.Þórsteinn Svanhildarson

Sýningin stendur yfir til miðvikudagsins 27. mars en þá er lokahóf sýningarinnar, sem verður kynnt nánar síðar.

Frá vinstri: Steingrímur Eyfjörð, Ármann Reynisson, Sölvi Snær Magnússon og Elías Guðmundsson.Þórsteinn Svanhildarson
Natka Klimowicz skenkir í glös.Þórsteinn Svanhildarson
Fjölbreyttar kynslóðir sóttu opnun hjá Gallery Porti.Þórsteinn Svanhildarson
Jón Valur og Guðmundur Jónsson eigandi Listamenn, gallerí og innrömmunarverkstæði.Þórsteinn Svanhildarson
Bronsstytta Baldurs Helgasonar vakti lukku gesta á ólíkum aldri.Þórsteinn Svanhildarson
Aðalsteinn Jörundsson og Helgi Örn Pétursson.Þórsteinn Svanhildarson
Smjör og neftóbak er meðal viðfangsefna í verki Loja Höskuldssonar í bakgrunni.Þórsteinn Svanhildarson
Fatahönnuðurinn og listakonan Ragna Bjarnadóttir fyrir miðju eflaust á listrænu og skemmtilegu spjalli við Patty Spyrakos og fleiri.Þórsteinn Svanhildarson
Baldur Helgason myndlistarmaður ræðir við gesti hér til vinstri. Búningahönnuðurinn Tanja Huld Levý lét sig ekki vanta og mætti með kærastanum sínum Jökli Jónssyni.Þórsteinn Svanhildarson
Margt var um manninn á opnuninni. Í bakgrunni má sjá verk eftir Baldur Helgason.Þórsteinn Svanhildarson
Loji Höskuldsson myndlistarmaður á spjalli við Brynhildi Bolladóttur og aðra sýningargesti.Þórsteinn Svanhildarson
Gestir voru mættir fyrir opnun og biðu eftir því að komast inn.Þórsteinn Svanhildarson
Fólk streymdi stöðugt inn á meðan að opnuninni stóð.Þórsteinn Svanhildarson
Skarphéðinn Bergþóruson, einn eiganda Gallery Ports, opnar fyrir fyrstu gestum.Þórsteinn Svanhildarson
Að sögn Portsins var mjög góð stemning á opnuninni. Þórsteinn Svanhildarson
Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson virðir fyrir sér málverk Baldurs Helgasonar.Þórsteinn Svanhildarson
Myndlistarmennirnir Sigurður Ámundason og Magnús Orri Magnússon.Þórsteinn Svanhildarson
Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason og Dagný Berglind Gísladóttir.Þórsteinn Svanhildarson
Baldur Helgason spjallar við Anton Lyngdal.Þórsteinn Svanhildarson
Mörður Áslaugarson og Snorri Ásmundsson voru í góðu stuði.Þórsteinn Svanhildarson
Menningarmaðurinn Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams var meðal gesta.Þórsteinn Svanhildarson
Eyjólfur Pálsson og arkítektinn Ásmundur Hrafn Sturluson létu sig ekki vanta.Þórsteinn Svanhildarson
Að sögn Portsins var mjög góð stemning á opnuninni.Þórsteinn Svanhildarson
Listamaðurinn Steingrímur Eyfjörð var í góðum félagsskap.Þórsteinn Svanhildarson
Sigrún Karls Kristínardóttir og Björn Þór Björnsson.Þórsteinn Svanhildarson
Sýningin stendur til 27. mars næstkomandi.Þórsteinn Svanhildarson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×