Sport

Dag­skráin í dag: Fjór­tán beinar út­sendingar á laugar­degi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Albert Guðmundsson og félagar í Genoa mæta Napoli í dag.
Albert Guðmundsson og félagar í Genoa mæta Napoli í dag. Nicolò Campo/LightRocket via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á fjórtán beinar útsendingar á þessum fína laugardegi. Það ættu því allir að geta fudið sér eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Lengjubikarinn á heima á Stöð 2 Sport og við hefjum leik á viðureign Kaflavíkur og Fylkis í Lengjubikar kvenna klukkan 11:55. Klukkan 13:55 er svo komið að körlunum þar sem Vestri og FH eigast við.

Stöð 2 Sport 2

Við bjóðum upp á þrjár beinar útsendingar úr ítalska boltanum og eina frá NBA á Stöð 2 Sport 2 í dag og í kvöld. Albert Guðmundsson og félagar í Genoa heimsækja Napoli klukkan 13:50 og Hellas Verona tekur á móti Juventus klukkan 16:50 áður en Atalanta og Sassuolo eigast við klukkan 19:35.

Þá heldur veislan áfram í All-Star helginni í NBA klukkan 01:00 eftir miðnætti.

Stöð 2 Sport 3

Undanúrslitin í spænska bikarnum í körfubolta fara fram í dag og verður sýnt frá báðum leikjunum í beinni útsendingu frá klukkan 16:50.

Stöð 2 Sport 4

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille taka á móti Le Havre í franska fótboltanum klukkan 15:50.

Stöð 2 eSport

Lokaumferðin í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike fer fram í dag og hefst bein útsending frá leikjum kvöldsins klukkan 17:45.

Vodafone Sport

Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg heimsækja Nürnberg í þýsku deildinni í fótbolta klukkan 10:55 áður en Leicester tekur á móti Middlesbrough í ensku 1. deildinni klukkan 14:55,

Þá verður Ísak Bergmann Jóhannesson í eldlínunni í þýsku B-deildinni þegar Fortuna Düsseldorf sækir Karlsruher SC heim klukkan 19:20 og klukkan 00:05 eftir miðnætti hefst bein útsending frá viðureign Maple Leafs og Ducks í NHL-deildinni í íshokkí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×