Merkt ástinni
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson biti mynd af eiginkonu sinni, Lísu Hafliðadóttur, í tilefni dagsins með textanum.
„My 4 ever Valentine.“ Á myndinni má sjá glitta í lítið F aftan á handlegg Lísu þar sem þau eru staðsett á húðflúrstofunni Reykjavík Ink.

Ást í Hafnarfirði
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona birti mynd af sér og kærastanum Ólafi Friðrik Ólafssyni í kossaflensi í upplýsta hjartanu í Hafnarfirði.

Ástin getur flutt fjöll
Listakonan og leikmyndahönnuðurinn Sunneva Ása Weisshappel birti fallega mynd af sér og kvikmyndaframleiðandanum Baltasar Kormáki með textanum: Love can move mountains, eða ástin getur flutt fjöll.

Blóm og konfekt enginn mælikvarði
Tónlistarkonan, plötusnúðurinn og Reykjavíkurdóttirin Ragnhildur Jónasdóttir, betur þekkt sem Ragga Holm, segir að hvorki blómvöndur né konfektmoli geti sagt til um hversu mikið hún elski kærustuna sína, Elmu Valgerði Sveinbjörnsdóttur.

Fox-hjónin
Listamaðurinn Elli Egilsson birti fallega mynd af sér og eiginkonu sinni, Maríu Birtu Bjarnadóttur, leikkonu. Þess má geta að hjónin hafa bætt við eftirnafninu Fox á miðlum sínum.

Ást að hjálpast að í ælupest
Elísabet Gunnarsdóttir, tískudrotttning og áhrifavaldur, rifjar upp rómantíska ferð hennar og eiginmannsins, Gunnars Steins Jónssonar, til Parísar um árið og birti fallega mynd af þeim við Eiffel-turninn.
„Rómans minningar er það eina sem var rómans við þennan Valentínusardaginn, Ælupest á kids var þemað 2024. Líka ást að hjálpast að með svoleiðis bras,“ skrifar Elísabet við myndina.


Ástinni fagnað í fjarlægð
Leikaraparið Oddur Júlíusson og Ebba Katrín Finnsdóttir fagna sex ára sambandsafmæli þeirra í sitt hvoru landinu þetta árið.
„6 ár með ofurkonunni minni. Höldum uppá það í þetta skiptið í sitt hvoru lagi og Bombóleijó hvað ég sakna hennar. Veriði nú góð við hana segið henni hvað mér þykir vænt um hana. Og í gvuðana bænum nennir einhver að elda handa henni mat á meðan ég er úti.
Læt fylgja mynd af uppáhalds desertinum hennar. Elska þig MUCHO GRANDE,“ skrifar Oddur við myndafærslu af þeim hjúum í tilefni dagsins.

„Dagurinn okkar“
Crossfitstjarnan Annie Mist Þórisdóttir fagnar þrettánda Valentínusardeginum með ástinni, Fredrik Aegidius.
„Galið hvað tíminn flýgur. Ég er svo þakklát fyrir hvert ár,“ skrifar Annie meðal annars við myndafærsluna.