Innlent

Lög­reglan leitar að Daníel

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þeir sem geta gefið upplýsingar eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna.
Þeir sem geta gefið upplýsingar eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna. Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníeli Loga Matthíassyni.  Síðast er vitað um ferðir hans í Krónunni á Fiskislóð úti á Granda.

Daníel Logi er 23 ára. Hann er með dökkt krullað sítt hár bundið í hnút. Hann er klæddur í svarta úlpu, hvíta rúllukragapeysu, ljósbrúnum buxur og svarta skó.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Daníels Loga eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×