Sport

Dag­skráin í dag: Makinda­legur mánu­dagur

Siggeir Ævarsson skrifar
Harry Kane og félagar eiga leik í kvöld
Harry Kane og félagar eiga leik í kvöld vísir/Getty

Eftir þéttskipaða helgi af íþróttakappleikjum er rólegur mánudagur framundan en að sjálfsögðu eru nokkrar beinar útsendingar á rásum Stöðvar 2 Sport í dag

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18:55 er komið að upphitun fyrir Ofurskálina, Road to the Super Bowl.

Meistararnir og NBA sérfræðingarnir í Lögmáli leiksins mæta svo til leiks á skjáinn kl. 20:00

Stöð 2 Sport 3

Roma - Cagliari kl. 19:35

Roma er að missa af lestinni í toppslagnum í Seríu A og Cagliari þarf nauðsynlega á stigum að halda í fallbaráttunnni og því má búast við hörkuleik á Ólympíuleikvangnum.

Vodafone Sport

Bayern - Freiburg kl. 18:25

Harry Kane og félagar vonast til að halda í við Leverkusen í toppbaráttunni í Bundeslígunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×