Sport

Dag­skráin í dag: Subway-deildin, Afríkukeppnin og ítalski boltinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valsmenn sækja Stjöruna heim í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Valsmenn sækja Stjöruna heim í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Vísir / Hulda Margrét

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á átta beinar útsendingar á þessum fyrsta föstudegi febrúarmánaðar.

Stöð 2 Sport

Stjarnan tekur á móti Val í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Bein útsending hefst klukkan 19:00 og að leik loknum verður Körfuboltakvöld á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta úr liðinni umferð.

Stöð 2 Sport 2

Lecce og Fiorentina eigast við í ítalska boltanum klukkan 19:35 í fyrsta leik Fiorentina eftir að liðinu mistókst að krækja í Albert Guðmundsson, leikmann Genoa, í gær.

Stöð 2 Sport 4

Women's Amateur Asia-Pacific Championship-mótið í golfi heldur áfram frá klukkan 07:00 og þá má einnig minnast á að bein útsending frá þriðja degi mótsins hefst klukkan 04:00 eftir miðnætti.

Vodafone Sport

Afríkukeppnin í fótbolta heldur áfram og klukkan 16:50 mætast Nígería og Angóla áður en Kongó og Gínea eigast við klukkan 19:50.

Að lokum hefst bein útsending frá All-Star hæfniskeppninni í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×