Sport

Dag­skráin í dag: Subway-deildin, rafíþróttir og ís­hokkí

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valskonur sækja Njarðvíkinga heim í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Valskonur sækja Njarðvíkinga heim í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Vísir/Bára Dröfn

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á fjórar beinar útsendingar á þessum síðasta degi janúarmánaðar.

Við hefjum leik í Njarðvík þar sem heimakonur taka á móti Val í Subway-deild kvenna í körfubolta. Bein útsending hefst klukkan 19:05 á Stöð 2 Sport, en að leik loknum verður Körfuboltakvöld á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta.

Þá verður Föruneyti Pingsins á sínum stað með sinn vikulega þátt á Stöð 2 eSport klukkan 20:00 og klukkan 00:05 eftir miðnætti hefst bein útsending frá viðureign Red Wings og Senators í NHL-deildinni í íshokkí á Vodafone Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×