Erlent

Scholz varar við fjölgun í nýnasistahreyfingum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Minningardagur helfararinnar er haldinn 27. janúar ár hvert. 
Minningardagur helfararinnar er haldinn 27. janúar ár hvert.  EPA

Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur lýst yfir áhyggjum af uppgangi öfgahægristefnu í landinu. Minningardagur helfararinnar var haldinn í gær og í ávarpi sínu varaði hann við fjölgun í nýnasistahreyfingum í Þýskalandi. 

Liðin eru 79 ár síðan sovéskir hermenn frelsuðu gyðinga úr útrýmingarbúðum nasista þann 27. janúar 1945. Þúsundir manna mótmæltu öfgahægrihreyfingum, sér í lagi öfgahægriflokknum AfD, víða um Þýskaland á minningardeginum. 

Mótmælin koma í kjölfar nýrrar og öfgakenndrar innflytjendastefnu stjórnmálaflokksins AfD. Í henni felst fjöldabrottvísun þýskra ríkisborgara af erlendum uppruna. 

Rökræður um hvort banna eigi stjórnmálahreyfingar sem tileinka sér öfgahægristefnu hafa síðan þá gengið á.

Í ávarpi sínu á minningardegi helfararinnar í gær sagði Scholz tilkynningum um nýnasistahreyfingar og spjallþræði þeirra fara fjölgandi. Og á sama tíma hljóti hægri sinnaðar popúlistahreyfingar síaukið fylgi, sem ýti undir ótta og hatur. 

„En þessi þróun er ekki eitthvað sem við getum tekið í sátt,“ sagði Scholz og biðlaði til Þjóðverja að standa saman gegn öfgahægrinu og vernda þýska lýðræðið. 

Þá fagnaði hann tímamótaúrskurði stjórnlagadómstóls Þýskalands sem kveðinn var upp á miðvikudag. Í honum felst að skera niður fjárframlög til öfgahægriflokksins Die Heimat. Um er að ræða fyrsta skiptið þar sem dómstóllinn framkvæmir slíkan niðurskurð til stjórnmálaflokks án þess að leggja niður flokkinn. 

Mótmælendur gegn öfgahægrihreyfingunum binda vonir við að úrskurðurinn verði til þess að fylgi AfD hjaðni, en það er komið upp í tuttugu prósent á landsvísu í Þýskalandi. Þingkosningar eru fyrirhugaðar í júní á þessu ári. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×