Sport

Dag­skráin í dag: Komast ríkjandi meistarar Kansas City Chiefs aftur í Ofur­skálina?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Patrick Mahomes og félagar geta komist í Ofurskálina enn og aftur.
Patrick Mahomes og félagar geta komist í Ofurskálina enn og aftur. Timothy T Ludwig/Getty Images

Það er svo sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag en við bjóðum upp á 21 beina útsendingu.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.20 hefst útsending frá keilu á Reykjavíkurleikunum 2024.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 11.35 hefst leikur frá Miðlöndunum í Englandi þar sem West Bromwich Albion tekur á móti Wolverhampton Wanderers, Úlfunum í þeirri elstu og virtustu, ensku bikarkeppninni í knattspyrnu.

Klukkan 14.20 er komið að leik Liverpool og Norwich City í sömu keppni. Klukkan 16.20 tekur Newport County á móti Manchester United en gestirnir fóru í úrslit keppninnar á síðustu leiktíð.

Klukkan 18.30 verða leikir dagsins í ensku bikarkeppninni gerðir upp.

Klukkan 19.30 hefst upphitun fyrir leiki kvöldsins í NFL. Um er að ræða úrslitaleikina í sitthvorri deildinni en sigurvegarar kvöldsins fara í Ofurskálina (e. Superbowl).

Klukkan 20.00 er leikur Baltimore Ravens og Kansas City Chiefs á dagskrá en Höfðingjarnir frá Kansas eru ríkjandi meistarar. Klukkan 23.30 er leikur San Francisco 49ers og Detroit Lions á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 11.20 hefst útsending frá Ítalíu þar sem Genoa mætir Lecce í Serie A, efstu deild karla í knattspyrnu þar í landi. Albert Guðmundsson leikur með Genoa.

Klukkan 13.50 er leikur Watford og Southampton í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu á dagskrá.

Klukkan 17.20 er leikur Valencia og Unicaja í ACB-deildinni á dagskrá.

Klukkan 20.30 mætast Indiana Pacers og Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 11.50 er leikur Montpellier og Lille í Ligue 1, efstu deild Frakklands í knattspyrnu, á dagskrá. Hákon Arnar Haraldsson er leikmaður Lille.

Klukkan 16.50 er leikur Lazio og Napoli í Serie A á dagskrá.

Klukkan 19.00 er LPGA Drive On Championship-mótið í golfi á dagskrá.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 11.50 er leikur Kanarí og Real Madríd í ACB-deildinni í körfubolta á Spáni á dagskrá.

Klukkan 19.35 er leikur Fiorentina og Inter Milan í Serie A á dagskrá.

Vodafone Sport

Klukkan 12.25 er leikur Everton og Leicester City í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á dagskrá.

Klukkan 16.25 er leikur Liverpool og Arsenal í sömu deild á dagskrá.

Klukkan 19.50 er leikur Egyptalands og Kongó í Afríkukeppninni í knattspyrnu á dagskrá.

Klukkan 02.05 er leikur Kraken og Blue Jackets í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×