Sport

Dag­skráin í dag: FA-bikarinn, Afríkukeppnin, ítalski boltinn og margt fleira

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Newcaslte og Fulham eigast við í úrvalsdeildarslag í FA-bikarnum í dag.
Newcaslte og Fulham eigast við í úrvalsdeildarslag í FA-bikarnum í dag. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á fjórtán beinar útsendingar á þessum síðasta laugardegi janúarmánaðar þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Reykjavíkurleikarnir í pílukasti eru farnir af stað og bein útsending verður frá keppni dagsins á Stöð 2 Sport frá klukkan 19:30.

Stöð 2 Sport 2

Tveir leikir í elstu og virtustu bikarkeppni heims, FA-bikarnum, verða á dagskrá á Stöð 2 Sport 2 í dag. Ipswich Town tekur á móti Maidstone United klukkan 12:20 áður en Newcastle sækir Fulham heim klukkan 18:50. Klukkan 15:00 verður FA Cup Super Saturday einnig á dagskrá þar sem fylgst verður með leikjum dagsins.

Þá mætast Denver Nuggets og Philedelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta einnig klukkan 22:30.

Stöð 2 Sport 3

Everton og Luton mætast í úrvalsdeildarslag í FA-bikarnum klukkan 14:50 áður en AC Milan tekur á móti Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni klukkan 19:35.

Stöð 2 Sport 4

Leeds og Plymouth eigast við í FA-bikarnum klukkan 14:50, en klukkan 19:00 hefst bein útsending frá LPGA Drive On Championship á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Stöð 2 Sport 5

Sheffield United og Brighton mætast í úrvalsdeildarslag í FA-bikarnum klukkan 14:50.

Vodafone Sport

Þá verður nóg um að vera á Vodafone Sport. Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München taka á móti Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu klukkan 12:55 áður en við fáum tvo leiki í Afríkukeppninni í fótbolta. Þar mætast Angóla og Namibía klukkan 16:50 annars vegar og Nígería og Kamerún klukkan 19:50 hins vegar.

Að lokum mætast Jets og Maple Leafs í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×