Sport

Dag­skráin í dag: Rauði herinn ætlar að marsera í úr­slit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Virgil van Dijk og félagar í Liverpool eru 90 mínútum frá sæti í úrslitum enska deildarbikarsins.
Virgil van Dijk og félagar í Liverpool eru 90 mínútum frá sæti í úrslitum enska deildarbikarsins. Simon Stacpoole/Offside/Offside via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á sex beinar útsendingar þennan miðvikudaginn. Valur og Keflavík eigast við í Subway-deild kvenna í körfubolta áður en Liverpool sækir Fulham heim í seinni undanúrslitaveiðureign liðanna í enska deildarbikarnum.

Við hefjum þó leik á Afríkumótinu í knattspyrnu þar sem Suður-Afríka og Túnis eigast við í lokaumferð E-riðils klukkan 16:55 á Vodafone Sport.

Klukkan 19:05 er svo komið að beinni útsendingu frá viðureign Vals og Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta á Stöð 2 Sport, en að leik loknum verðir Körfuboltakvöld á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum umferðarinnar.

Fulham og Liverpool eigast svo við í seinni undanúrslitaviðureign liðanna í enska deildarbikarnum á Vodafone Sport. Liverpool leiðir einvígið 2-1 eftir sigur á heimavelli, en bein útsending hefst klukkan 19:55.

Þá verður Föruneyti Pingsins á sínum stað klukkan 20:00 á Stöð 2 eSport og klukkan 00:05 eftir miðnætti er komið að viðureign Maple Leafs og Jets í NHL-deildinni í íshokkí á Vodafone Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×