Sport

Dag­skráin í dag: Afríku­keppnin, NHL, Lög­mál leiksins og GameTí­ví

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bebe, fyrrum leikmaður Manchester United, er allt í öllu hjá Grænhöfðaeyjum.
Bebe, fyrrum leikmaður Manchester United, er allt í öllu hjá Grænhöfðaeyjum. Visionhaus/Getty Images

Það er sitt lítið af hverju á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 20.00 er Lögmál leiksins á dagskrá. Þar verður farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA-deildinni í körfubolta að undanförnu.

Vodafone Sport

Klukkan 16.55 er leikur Gínea-Bissaú og Nígeríu í Afríkukeppninni í knattspyrnu á dagskrá. Klukkan 19.55 er komið að leik Grænhöfðaeyja og Egyptalands.

Klukkan 00.05 er komið að leik Boston Bruins og Winnipeg Jets í NHL-deildinni í íshokkí.

Stöð 2 ESport

Klukkan 20.00 er GameTíví á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×