Sport

Dag­skráin í dag: Bland í poka á laugar­degi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rómverjar leika sinn fyrsta leik í ítölsku úrvalsdeildinni í dag eftir að Jose Mourinho var látinn fara frá félaginu.
Rómverjar leika sinn fyrsta leik í ítölsku úrvalsdeildinni í dag eftir að Jose Mourinho var látinn fara frá félaginu. Elianton/Mondadori Portfolio via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á þrettán beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum á þessum fína laugardegi þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport 2

Roma leikur sinn fyrsta leik í ítölsku úrvalsdeildinni eftir að Jose Mourinho var látinn fara frá félaginu í vikunni þegar liðið tekur á móti Hellas Verona klukkan 16:50.

Klukkan 21:30 er svo komið að viðureign Baltimore Ravens og Houston Texans í NFL-deildinni í amerískum fótbolta áður en San Fransisco 49ers og Green Bay Packers eigast við klukkan 01:15 eftir miðnætti.

Stöð 2 Sport 3

Detroit Pistons og Milwaukee Bucks eigast við í NBA-deildinni í körfubolta klukkan 20:00.

Stöð 2 Sport 4

Tournament of Champions á LPGA-mótaröðinni í golfi heldur áfram frá klukkan 19:00 í kvöld.

Stöð 2 Sport 5

Udinese og AC Milan eigast við í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu klukkan 19:35.

Stöð 2 eSport

Ljósleiðaradeildin er komin á fullt á nýjan leik og nú er komið að öðrum Ofurlaugardegi tímabilsins. Leikin verður heil umferð og hefjast herlegheitin klukkan 16:35.

Vodafone Sport

Boðið verður upp á tvær beinar útsendingar frá ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Swansea tekur á móti Southampton klukkan 12:25 áður en Watford sækir Bristol heim klukkan 14:55.

Þá verða einnig tvær viðureignir á Afríkumótinu í beinni útsendinu þegar Máritanía og Angóla eigast við annars vegar, og Túnis og Malí hins vegar.

Að lokum er komið að viðureign Canucks og Maple Leafs í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti áður en UFC 297: Stickland gegn Du Plessis leiðir nátthrafnana inn í nóttina frá klukkan 03:00 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×