Sport

Dag­skráin í dag: Liverpool og Fulham berjast um sæti í úr­slitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Liverpool tekur á móti Fulham í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í enska deildarbikarnum í dag.
Liverpool tekur á móti Fulham í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í enska deildarbikarnum í dag. MB Media/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á sex beinar útsendingar á þessum fína miðvikudegi. Þar ber hæst að nefna viðureign Liverpool og Fulham í undanúrslitum enska deildarbikarsins.

Körfuboltinn á þó sviðið í upphafi kvölds þegar Keflavík tekur á móti Tindastóli í Subway-deild karla klukkan 19:05 á Stöð 2 Sport 5 og Valur heimsækir Fjölni í Subway-deild kvenna á sama tíma á Stöð 2 Sport. Að leik Fjölnis og Vals loknum verður Körfuboltakvöld svo á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta úr liðinni umferð í Subway-deild kvenna.

Klukkan 19:55 er svo komið að fyrri undanúrslitaviðureign Liverpool og Fulham um sæti í úrslitum enska deildarbikarsins. Leikurinn fer fram á Anfield, heimavelli Liverpool, og verður sýndur á Vodafone Sport.

Að lokum verður Föruneyti Pingsins á sínum stað á Stöð 2 eSport klukkan 20:00 og bein útsending frá viðureign Flyers og Canadiens í NHL-deildinni í íshokkí hefst klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×