Lífið

Timberlake eyðir öllu af Instagram

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Justin Timberlake hefur farið huldu höfði á samfélagsmiðlum undanfarna mánuði og gengur nú skrefinu lengra.
Justin Timberlake hefur farið huldu höfði á samfélagsmiðlum undanfarna mánuði og gengur nú skrefinu lengra. Gilbert Flores/Getty Images

Bandaríski söngvarinn Justin Timberlake hefur eytt öllu sínu efni af samfélagsmiðlinum Instagram. Enga mynd er nú að finna á aðgangi söngvarans á miðlinum.

Í umfjöllun bandaríska slúðurmiðilsins PageSix eru þessi tíðindi sett í beint samhengi við opinberanir um Timberlake í bók Britney Spears. Hún lýsti hegðun hans í hennar garð á meðan þau voru kærustupar árin 1999 til 2002.

Britney sagði meðal annars frá því að hann hefði þrýst á hana að fara í þungunarrof og hætt með henni í gegnum textaskilaboð. Hann hafi auk þess haldið framhjá henni með „mjög þekktri“ konu.

Timberlake þurfti í kjölfarið að slökkva á athugasemdum á Instagram vegna hatursfullra ummæla frá aðdáendum söngkonunnar. Hann hefur lítið látið fyrir sér fara síðan opinberanirnar komu upp í október.

Fram kemur í umfjöllun PageSix að ekki hafi náðst í hann vegna málsins nú. Miðillinn segist þó hafa heimildir fyrir því að söngvarinn muni gefa út nýja tónlist á árinu sem var að ganga í garð. Hann ætli sér auk þess á tónleikaferðalag um Bandaríkin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×