Sport

Dag­skráin í dag: Enski bikarinn á­berandi

Siggeir Ævarsson skrifar
Kieran Trippier og Callum Wilson, leikmenn Newcastle eiga bikarleik í dag
Kieran Trippier og Callum Wilson, leikmenn Newcastle eiga bikarleik í dag Vísir/Getty

Það er af nógu að taka í beinum útsendingum á stöðvum Stöðvar 2 Sport í dag en enski bikarinn er fyrirferðamikill að þessu sinni.

Stöð 2 Sport

Klukkan 13:50 hefst bein útsending frá Subway-deild kvenna þar sem Stjarnan tekur á móti Njarðvík í Umhyggjuhöllinni.

Stöð 2 Sport 2

Útsending hefst kl. 12:35 með leik Sunderland og Newcastle í enska bikarnum.

Næst á dagskrá er svo viðureign Stoke og Brighton í bikarnum og hefst útsendingin kl. 14:50

Síðasta bikarviðureign dagsins á Stöð 2 Sport 2 hefst svo kl. 17:20 þegar Chelsea tekur á móti Preston North End

Stöð 2 Sport 3

Enski bikarinn verður líka á dagskrá Stöðvar 2 Sport 3. Klukkan 12:20 er viðureign Millwall og Leicester á dagskrá. Að honum loknum, kl. 15:00 er komið að FA Cup Super Saturday yfirferð.

Middlesbrough og Aston Villa mætast svo kl. 17:20.

Stöð 2 Sport 4

Ítalski boltinn á sínum stað og eru fjórir leikir á dagskrá. Klukkan 11:20 hefst útsending frá leik Inter og Hellas Verona í Seríu A. Klukkan 13:50 fer svo viðureign Frosinone og Monza í loftið. Klukkan 16:50 er leikur  Lecce og Cagliari. Lokaviðureign dagsins er svo leikur Sassuolo og Fiorentina kl. 19:35.

Stöð 2 Sport 5

Einn leikur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5. Viðureign Andorra og Murcia í spænsku ACB deildinni í körfubolta.

Vodafone Sport

Þrír leikir úr gjörólíkum áttum verða í beinni útsendingu á Vodafone Sport.

Klukkan 12:25 er það viðureign Fleetwood og Derby í ensku B-deildinni.

Klukkan 16:55 er komið að sænsku íshokkí þar sem Lulea tekur á móti Timra.

Að lokum er það svo meira hokkí, en nú frá Bandaríkjunum, kl. 21:05 þar sem Avalanche og Panthers mætast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×