Sport

Dag­skráin í dag: Ameríski fót­boltinn og Sportsíldin

Siggeir Ævarsson skrifar
Leikmenn í NFL deildinni fá ekki langt jólafrí
Leikmenn í NFL deildinni fá ekki langt jólafrí Vísir/AP

Það verður nóg um að vera í NFL deildinni í dag en það eru leikir á dagskrá nánast til áramóta að íslenskum tíma. Svo má ekki gleyma Sportsíldinni sem fer í loftið kl. 16:00

Stöð 2 Sport

Sportsíldin 2023 hefst kl. 16:00. Veglegt áramótauppgjör þar sem Guðmundur Benediktsson og Kjartan Atli Kjartansson gera upp íþróttaárið í máli og myndum. Gestir þáttarins eru Dagur Sigurðsson, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Kristjana Arnarsdóttir og Teitur Örlygsson.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 11:20 hefst útsending frá leik Real Madrid - Valencia í spænsku ACB deildinni í körfubolta.

Klukkan 17:55 er svo fyrsti NFL leikur dagsins á dagskrá og er það viðureign Ravens og Dolphins

Síðasti NFL leikur dagsins er einnig á Stöð 2 Sport 2. Klukkan 21:20 hefst bein útsending frá viðureign Chiefs og Bengals.

Stöð 2 Sport 3

NFL Red Zone verður á Stöð 2 Sport 3 og fer í loftið kl. 17:45

Stöð 2 Sport 4

Einn NBA leikur á gamlársdag hefst á kristilegum tíma og það er viðureign Wizards og Hawks. Hann verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×