Sport

Dag­skráin í dag: Bland í poka á síðasta laugar­degi ársins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
José Mourinho og lærisveinar hans í Roma sækja Juventus heim í ítalska boltanum í kvöld.
José Mourinho og lærisveinar hans í Roma sækja Juventus heim í ítalska boltanum í kvöld. Vísir/Getty

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á tíu beinar útsendingar á þessum síðasta laugardegi ársins 2023.

Stöð 2 Sport

Þátturinn Íslandsmeistarar heldur áfram á Stöð 2 Sport klukkan 20:00 í kvöld og í þetta sinn verður fjallað um leið Tindastóls að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í sögunni.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn er á fleygiferð og verða fjórir leikir á dagskrá í dag. Atalanta og Lecce eigast við klukkan 11:20, Udinese tekur á móti Bologna klukkan 13:50, AC Milan og Sassuolo eigast við klukkan 16:50 og klukkan 19:35 tekur Juventus á móti Roma.

Þá fær NBA-deildin í körfubolta einnig sitt pláss á Stöð 2 Sport 2 þegar Utah Jazz og Miami Heat eigast við klukkan 22:00.

Stöð 2 Sport 3

Básquet Girona og Baskonia eigast við í spænsku ACB-deildinni í körfubolta klukkan 19:35.

Vodafone Sport

HM í pílukasti hefur áfram og í dag klárast 16-manna úrslitin. Fyrri útsending dagsins hefst klukkan 12:25 áður en sú síðari hefst klukkan 18:55.

Þá mætast Bruins og Devils í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti til að loka deginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×