Innlent

Spá næsta eld­gosi á milli Sýlingarfells og Hagafells

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eldgosði í Sundhnúksgígum var afar kraftmikið til að byrja með en þremur dögum síðar var því lokið.
Eldgosði í Sundhnúksgígum var afar kraftmikið til að byrja með en þremur dögum síðar var því lokið. vísir/Vilhelm

Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvikusöfnun og landris við Svartsengi leiði til eldgoss á milli Sýlingarfells og Hagafells. Líkur á eldgosi aukast með hverjum degi sem líður.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Tilkynnt var í gær að slokknað hefði í gígum gossprungunnar á Sundhnúksgígum. Gosinu virðist því lokið í bili. 

Áfram hefur dregið úr jarðskjálftavirkni og síðasta sólarhringinn hafa tæplega 90 skjálftar mælst yfir ganginum sem er örlítið meira en í gær. Stærsti skjálftinn var 1,6 vestan við Hagafell rúmlega 16:00 í gær.

Land fór strax aftur að rísa við Svartsengi eftir að gos hófst á mánudagskvöld. 

„Hraðinn á landrisinu er meiri en fyrir gos. Þetta þýðir að kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi, og líklegt er að það leiði til annars kvikuhlaups og einnig eldgoss. Líklegasta upptakasvæði fyrir eldgos er á milli Sýlingarfells og Hagafells,“ segir á vef Veðurstofunnar. 

„Landris kúrfan eins og hún mældist frá kvikuhlaupinu 10. nóvember þar til gos hófst 18. desember einkenndist af hægt minnkandi landrismerki þar sem gos hófst þegar verulega hafði dregið úr landrishraðanum. Þetta ferli á mjög líklega eftir að endurtaka sig og búast má við að næsta kvikuhlaup geti hafist með litlum fyrirvara þegar draga fer aftur úr landrishraða. Líkur á eldgosi aukast því með hverjum deginum sem líður.“

Nýja hættumatið.

Veðurstofan hefur gefið út nýtt hættumatskort byggt á að slokknað er í öllum gígum og engin virkni mælanleg. Hættumatskortið tekur gildi klukkan 16 í dag og gildir til klukkan 18 29. desember. 

„Breytingin felst í að svæði 2 og 3 hefur verið fært af mjög mikilli hættu í mikla hættu (rautt). Önnur svæði haldast eins og vakin er athygli á því að hættumat fyrir Grindavík er óbreytt frá fyrra hættumatskorti og er enn á töluverðri hættu. Veðurstofan bendir á að aðstæður geta breyst hratt og veðuraðstæður hverju sinni geta haft veruleg áhrif á næmni jarðskjálfta- og GPS kerfa Veðurstofunnar. Við þær aðstæður getur viðbragstími lengst töluvert.“

Veðurspá fyrir Gríndavík á morgun Þorláksmessu hljóðar upp á norðaustan 10-15 m/s, snjókomu með köflum og mögulega skafrenning. Frost verður þrjú til fimm stig. Á aðfangadag er norðan 13-18 m/s og stöku él, en 10-15 m/s síðdegis og líkur á éljum minnka. Áfram má búast við skafrenningi öðru hvoru. Frost 0 til 2 stig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×