Sport

Dag­skráin í dag: HM í pílukasti, Lokasóknin og Körfuboltakvöld Extra

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Fimmti dagur heimsmeistaramótsins í pílukasti verður í beinni útsendingu á Vodafone Sport.
Fimmti dagur heimsmeistaramótsins í pílukasti verður í beinni útsendingu á Vodafone Sport. Alex Davidson/Getty Images

Það er þónokkuð um að vera þennan þriðjudaginn á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone. 

Vodafone Sport

Bein útsending verður frá 5. degi Heimsmeistaramótsins í pílukasti. Útsending hefst kl. 12:25 og stendur langt fram eftir kvöldi. 

Á miðnætti mætast svo Boston Bruins og Minnesota Wild í NHL deildinni. 

Stöð 2 Sport 

20:00 – Subway Körfuboltakvöld Extra: Léttur og skemmtilegur spjallþáttur þar sem Stefán Árni og Tómas Steindórsson fara yfir allt það helsta innan og utanvallar í Subway deildinni. 

Stöð 2 Sport 2 

20:00 – Lokasóknin fer yfir helstu tilþrif og fjallar um 15. umferð NFL deildarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×