Sport

Dag­skráin í dag: Evrópu­deildin, Skipti­borðið og Blikar ljúka leik í Sam­bands­deildinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Breiðablik hefur staðið í ströngu í vetur í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu
Breiðablik hefur staðið í ströngu í vetur í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu Vísir/Hulda Margrét

Það verður nóg að gera hjá þeim sem ætla að fylgjast með Sportrásum Stöðvar 2 í dag. Blikar leika sinn síðasta leik í Sambandsdeildinni í Póllandi í kvöld og þá verða leikir í Evrópudeildinni sem og Subway-deild karla í beinni útsendingu.

Stöð 2 Sport

Skiptiborðið fer í loftið klukkan 19:10 en þar verður sýnt frá öllum leikjum kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta. Að leikjunum loknum hefjast síðan Tilþrifin en þar verður farið yfir úrslitin í leikjum deildarinnar.

Stöð 2 Sport 2

LASK og Toulouse mætast í Austurríki í Evrópudeildinni og verður sýnt beint frá leiknum klukkan 17:35. Franska liðið þarf stig til að tryggja sér sæti í næstu umferð. 

Klukkan 19:50 hefst útsending frá leik Brighton og Marseille en bæði lið eru komin áfram í riðlinum.

Stöð 2 Sport 3

Ludogorets og Nordsjælland mætast i Sambandsdeildinni og hefst útsending 17:35. Klukkan 19:50 verður síðan sýnt beint frá leik Lille og Klaksvík þar sem Hákon Arnar Haraldsson verður í eldlínunni með Lille.

Stöð 2 Sport 5

Leikur Breiðabliks og Stjörnunnar í Subway-deild karla verður sýndur klukkan 17:40 og Grindavík og Haukar mætast síðan í sömu deild og hefst útsending 20:05. 

Stöð 2 Esport

BLAST Premier heldur áfram í dag og hófst upphitun fyrir annan dag klukkan 5:45. Leikir dagsins verða síðan í beinni allt þar til klukkan 15:00 í dag en þá hefst síðasti leikur dagsins.

Vodafone Sport

Leikur Union og Liverpool hefst klukkan 17:35 og verður í beinni útsendingu en Liverpool er búið að tryggja sér efsta sæti riðilsins. Útsending frá leik Zorya og Breiðbliks hefst 19:50 en leikur liðanna fer fram í Póllandi. Þetta er síðasti leikur Blika í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×