Sport

Dag­skráin í dag: Úr­slit ráðast í Meistara­deild Evrópu og ná­granna­slagur í Smáranum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Meistaradeildar-örlög Manchester United ráðast í kvöld.
Meistaradeildar-örlög Manchester United ráðast í kvöld. Clive Brunskill/Getty Images

Fjöldi stórleikja er á dagskrá rása Stöðvar 2 Sport þar sem það kemur endanlega í ljós hvaða lið komast áfram í 16-liða úrslit, hvaða lið fara í Evrópudeildina og hvaða lið eru úr leik.

Stöð 2 Sport

  • Grindavík tekur á móti Njarðvík í Smáranum í Kópavogi í Subway-deild kvenna í körfubolta. Um nágrannaslag er að ræða þó svo að Grindavík geti ekki spilað heimaleiki sína í eigin bæjarfélagi að svo stöddu.
  • Klukkan 22.05 er Körfuboltakvöld Extra á dagskrá.

Stöð 2 Sport 2

  • Klukkan 11.50 er leikur Lens og Sevilla í UEFA Youth League, Meistaradeild Evrópu U-19 ára liða, á dagskrá.
  • Klukkan 14.55 er leikur Napoli og Braga í sömu keppni á dagskrá.
  • Klukkan 19.30 er Meistaradeildarmessan á dagskrá. Þar verður farið yfir alla leiki kvöldsins í beinni og öll helstu atvik greind.
  • Klukkan 22.00 eru Meistaradeildarmörkin á dagskrá. Þar verður farið yfir allt sem gerðist í kvöld.

Stöð 2 Sport 3

  • Klukkan 17.35 er leikur PSV og Arsenal á dagskrá. Heimamenn þurfa stig hið minnsta til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum á meðan Skytturnar hafa tryggt sér sigur í B-riðli.
  • Klukkan 19.50 er leikur FC Kaupmannahafnar og Galatasaray á dagskrá. Bæði lið eiga möguleika á að komast áfram með sigri.
  • Klukkan 22.00 er Lokasóknin á dagskrá. Þar verður farið yfir liðna helgi í NFL-deildinni.

Stöð 2 Sport 4

  • Klukkan 19.50 er leikur Napoli og Braga á dagskrá. Gestirnir frá Portúgal þurfa sigur til að komast í 16-liða úrslit á meðan Napoli dugir stig.

Stöð 2 Sport 5

  • Klukkan 19.50 er leikur Inter og Real Sociedad á dagskrá. Sigurvegarinn vinnur D-riðil.

Vodafone Sport

  • Klukkan 17.35 er leikur Lens og Sevilla á dagskrá en liðin eru í B-riðli ásamt PSV og Arsenal.
  • Klukkan 19.50 er leikur Manchester United og Bayern M. á dagskrá. Gestirnir hafa þegar unnið riðilinn en heimamenn þurfa á sigri að halda til að eiga möguleika á að komast áfram. Til að það gangi eftir þarf leikur FCK og Galatasaray að enda með jafntefli.
  • Klukkan 00.05 er leikur New York Rangers og Toronto Maple Leafs í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×