Körfubolti

Á­horf­andi lést á NBA leik í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heimavöllur Sacramento Kings.
Heimavöllur Sacramento Kings. @sacramentokings

Sacramento Kings greindi frá því að áhorfandi á leik Sacramento Kings og New Orleans Pelicans í NBA deildarbikarnum í nótt hafi látist.

Upp kom neyðartilvik hjá umræddum áhorfenda í fyrsta leikhluta og ekki tókst að bjarga lífi viðkomandi. Sjúkraliðar mættu á svæðið og reyndu endurlífgun en án árangurs. Hann var úrskurðaður látinn eftir tuttugu mínútur.

Slökkvilið Sacramento segir að maðurinn hafi verið á fertugsaldri.

Keegan Murray, leikmaður Sacramento Kings, sagði blaðamönnum frá því að leikmenn liðsins hafi ekki vitað af atvikinu. Kings tapaði leiknum og komst ekki á úrslitahelgina í Las Vegas.

„Við sendum samúðarkveðjur frá öllu liðinu. Vonandi er hugsað vel um fjölskyldu hans,“ sagði Keegan Murray.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×