Innlent

Líf­eyris­sjóðir þráist við

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur
Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur Vísir

Formaður verkalýðsfélags Grindvíkinga gefur lítið fyrir yfirlýsingu lífeyrissjóðanna um að unnið sé að farsælli lausn fyrir grindvíska lántakendur. Þrjú verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla við húsnæði samtakanna og lífeyrissjóðs Gildis í dag.

Bankarnir og Íbúðalánasjóður boðuðu í síðustu viku að vegna náttúruhamfara og óvissu í Grindavík yrðu vextir og verðbætur af íbúðalánum Grindvíkinga felld niður í þrjá mánuði. Aðgerðin var með aðkomu stjórnvalda og fleiri aðila.

Um hundrað húsnæðiseigendur í Grindavík eru með lán hjá lífeyrissjóðum sem hafa ekki boðið sambærileg kjör. Lífeyrissjóðurinn Gildi þar sem flestir eru bauð á sama tíma að lántakendur gætu frestað greiðslum í sex mánuði. Í morgun tilkynntu svo Landssamtök lífeyrissjóða að þau hefðu ekki verið höfð með í ráðum þegar kynnt var heildstæð lausn frá lánastofnunum til Grindvíkinga. Unnið sé að lausn sem þurfi að rúmast innan ramma laga.

 Formaður VR, formaður vélstjóra og sjómannafélags Grindavíkur og Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur hafa boðað til mótmæla við Landssamtök lífeyrissjóða og Gildi lífeyrissjóð í dag.

„Lífeyrissjóðirnir hafa ekki fallist á að fella niður vexti og verðbætur í þrjá mánuði eins og stóru bankarnir hafa gert og íbúðalánasjóður nú þegar. Þeir þráast við og senda út einhverja moðsuðu í morgun sem er alls ekki nægjanleg. Þetta þarf að vera afdráttarlaust um að þeir ætli að fella niður vexti og verðbætur. Það sem ég les út úr þessu er að þeir eru enn að reyna að koma sér undan þessu,“ segir Hörður.

Húsnæði verkalýðsfélagsins stórskemmt

Hörður hefur einnig verið boðaður fyrir velferðarnefnd Alþingis í dag til að gefa umsögn um frumvarp um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara þar sem um er að ræða úrræði fyrir leigutaka á almennum markaði. Hörður var staddur í Grindavík í morgun með fulltrúum frá náttúruhamfaratryggingu en miklar skemmdir hafa orðið á húsnæði verkalýðsfélags Grindavíkur í bænum.

„Þegar maður labbar í gegnum húsið verður maður hálf sjóveikur. Gólfið er allt í bylgjum. Þetta virðist allt vera rammskakkt,“ sagði Hörður Guðbrandsson.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×