Erlent

Um­fangs­miklar að­gerðir Ísraelshers sagðar standa yfir á Vestur­bakkanum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Palestínskir verslunarmenn freista þess að selja lager sinn fyrir framan eyðilagða fataverslun í Beit Lahiya á Gasa.
Palestínskir verslunarmenn freista þess að selja lager sinn fyrir framan eyðilagða fataverslun í Beit Lahiya á Gasa. AP/Mohammed Hajjar

Palestínska dagblaðið Al-Quds segir Ísraelsher hafa ráðist inn í Jenin á Vesturbakkanum. Fréttamaður Al Jazeera í Jerúsalem segir aðgerðirnar hafa hafist í gærkvöldi og þær virðast enn í gangi.

Vitni í Jenin eru sögð hafa greint frá háværum sprengingum og drónum yfir borginni.

Al Jazeera hefur einnig sagt frá því að Ísraelsher hafi ráðist inn í al-Jalazone flóttamannabúðirnar norður af Ramallah og al-Askar flóttamannabúðirnar í borginni Nablus. 

Fréttastofan Wafa segir herinn hafa skotið táragasi að íbúum og heimilium í Jenin. Þá er haft eftir framkvæmdastjóra sjúkrahúss í borginni að hermenn hafi verið inni á spítalanum og að leitað hafi verið á starfsmönnum.

Wafa hefur einnig eftir stjórnanda annars sjúkrahúss að það hafi verið umkringt af hernum.

Guardian greinir frá en getur þess að fregnirnar hafi ekki verið staðfestar.

Samkvæmt AFP er nú rúmur sólahringur eftir af umsömdu hléi á átökum á Gasa og á þeim tíma munu að minnsta kosti ein fangaskipti eiga sér stað. Yfirvöld í Katar hafa hins vegar gefið út að þau vonist til þess að samningar náist um frekari framlengingu.

Hún er mjög háð því að Hamas samþykki að láta fleiri gísla lausa.

Ekkert bendir til þess að stjórnvöld í Ísrael hafi horfið frá þeim áætlunum sínum að hefja aðgerðir gegn Hamas á ný af fullum þunga þegar hléið tekur enda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×